Fólkið fyrst!
Ég hef afráðið að gefa áfram kost á mér til þess að leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi í næstu kosningum. Sem alþingismaður hef ég þjónað Norðvesturkjördæmi í fimm ár. Ég var fyrst kjörin á þing 2009 – 2013 en tók aftur þingsæti síðastliðið haust við fráfall Guðbjartar Hannessonar fyrrverandi velferðarráðherra. Þau mál sem brenna á byggðum landsins þekki ég af eigin raun og vil því beita mér fyrir bættum lífskjörum og afkomu íbúa landsbyggðarinnar.
Ég er jafnaðarmaður að hugsjón, set fólk í fyrirrúm og brenn fyrir jöfnuð, réttlæti og sanngjarnar leikreglur í samfélagi okkar. Mín helstu baráttumál hafa verið breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, bættar samgöngur og velferðarmál. Ég vil að Ísland sé eitt samfélag fyrir alla þar sem …
· hver maður fær að gefa eftir getu og þiggja eftir þörfum;
· gott og gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi, sterkt menntakerfi og traust og skilvirkt almannatryggingakerfi eru við lýði.
· byrðum er dreift á herðar þeirra sem geta borið þær;
· enginn maður þarf að óttast afkomu sína vegna örorku, aldurs eða fötlunar;
· þjóðarauðlindir eru nýttar í þágu samfélagsins og öflugra atvinnugreina;
· mannréttindi og atvinnufrelsi eru ófrávíkjanleg krafa;
· markaðurinn er þjónn en ekki herra - heilbrigt samkeppnisumhverfi ríkir í öllum atvinnugreinum;
Alþingi Íslendinga er mikilvægasta lýðræðisstofnun samfélags okkar. Virðing Alþingis veltur á framgöngu þeirra sem þar starfa. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess að bæta stjórnmálamenningu og umræðuhefð á Íslandi.
Nú er brýnna en nokkru sinni að snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar. Velferðarkerfið er í miklum vanda og engin menntastefna sjáanleg. Hægt og bítandi er verið að ýta fólki inn í einkarekin heilbrigðis- og menntakerfi með því að fjársvelta svo hið opinbera kerfi að það rís ekki undir hlutverki sínu. Mikið verk er óunnið í samgöngumálum, byggðamálum, auðlinda- og atvinnumálum, málefnum skuldara, öryrkja, aldraðra og barnafólks.
Ólína Þorvarðardóttir
Fólkið fyrst! Krafan er um eitt samfélag fyrir alla.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.