FNV veitt Byggðagleraugun 2023
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, veittu á dögunum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Byggðagleraugun 2023 fyrir framsækið og metnaðarfullt skólastarf. Katrín M. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri SSNV afhenti Þorkeli V. Þorsteinssyni, aðstoðarskólameistara FNV, viðurkenninguna á 31. ársþingi SSNV þann 14. apríl síðastliðinn.
Í frétt á vef SSNV segir að Byggðagleraugun séu viðurkenning sem stjórn SSNV veitir til ráðuneytis eða stofnunar sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna í landshlutanum eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans.
„Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur mikla þýðingu fyrir samfélögin á Norðurlandi vestra og þykir fyrirmyndardæmi um metnaðarfullt skólastarf á landsvísu. Skólinn hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og er í stöðugri þróun í sínu framsækna og faglega skólastarfi.
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður upp á staðnám á Sauðárkróki, dreifnám á Blönduósi, Hvammstanga eða Hólmavík. Nemendur í fjarnámi geta stundað námið hvaðan sem er af landinu eða hvar sem er í heiminum. Skólinn býður einnig uppá helgarnám í iðngreinum fyrir 23 ára og eldri og hefur hlotið mikið lof fyrir,“ segir í fréttinni.
Heimild: SSNV.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.