Fjölmiðlanefnd úthlutaði Nýprent ehf. rekstrarstyrk
Í vikunnu tilkynnti Fjölmiðlanefnd hvaða einkareknu fjölmiðlar fengu rekstrarstuðning árið 2023 en alls bárust 28 umsóknir þar sem alls var sótt um að upphæð 962 milljónum kr. Þremur umsóknum var synjað, því þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi, en til úthlutunar voru rúmar 470 milljónir. Árvakur hf. og Sýn hf. fengu hæstu styrkina eða rúmar 107 milljónir hvor en Nýprent á Sauðárkróki, sem gefur út Feyki og heldur úti Feykir.is, fékk að þessu sinni stuðning sem nemur 5.950.249 kr.
Feykir kemur út 48 sinnum á ári, stútfullur af efni tengdu Norðurlandi vestra, og þá er vefurinn uppfærður daglega og má áætla að þar birtist yfir 2000 fréttir, viðtöl, dægurefni, aðsendar greinar og tilkynningar yfir árið.
Styrkir dreifðust þannig:
- Árvakur hf. 107.155.187
- Birtíngur útgáfufélag ehf. 20.032.898
- Bændasamtök Íslands 20.816.416
- Eigin herra ehf. 3.103.234
- Elísa Guðrún ehf. 5.931.816
- Eyjasýn ehf. 2.367.395
- Fótbolti ehf. 7.678.544
- Fröken ehf. 10.974.262
- Hönnunarhúsið ehf. 1.600.769
- Leturstofan Vestmannaeyjum ehf. 4.020.746
- MD Reykjavík ehf. 7.855.101
- Mosfellingur ehf. 2.107.530
- Myllusetur ehf. 33.997.545
- Nýprent ehf. 5.950.249
- Prentmet Oddi ehf. 4.836.300
- Saganet – Útvarp Saga ehf. 4.732.544
- Sameinaða útgáfufélagið ehf. 54.701.442
- Skessuhorn ehf. 15.826.217
- Sólartún ehf. 16.119.419
- Steinprent ehf. 2.616.804
- Sýn hf. 107.155.187
- Tunnan prentþjónusta ehf. 3.801.810
- Útgáfufélag Austurlands ehf. 7.460.416
- Útgáfufélagið ehf. 6.713.182
- Víkurfréttir ehf. 12.962.661
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.