Fjölbreytt verkefni í anda náttúruverndar styrkt

Þann 11. júní sl. var í annað sinn úthlutað styrkjum úr Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar stofnanda Hagkaups. Samtals var úthlutað 22.100.000.- kr til 26 verkefna við hátíðlega athöfn í Iðnó.

Hæstu styrkirnir voru fjórir, að upphæð 2 milljónir hver. Þá hlutu: Daníel Bergmann ljósmyndari til útgáfu bókar um íslenska fálkann, Norræna húsið til endurbóta á friðlandinu í Vatnsmýrinni í samvinnu við Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg , Vanda Sigurgeirsdóttir kennari til doktorsrannsóknar um börn og náttúru og kvikmyndagerðarmennirnir Steingrímur Þórðarson og Lind Einarsdóttir til kvikmyndar um náttúru Íslands séða með augum sælkerans. 

Markmið sjóðsins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið.

Stjórn sjóðsins skipa Lilja Pálmadóttir formaður, Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í Listaháskóla Íslands og Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum.

Verkefnin sem hlutu styrki að þessu sinni eru:

Grunnskólinn austan Vatna

Grenndarspil

200.000

Útgáfa spils sem nemendur skólans hafa unnið sjálfir að í samvinnu við kennara sína. Spurningar eru í nokkrum flokkum en eiga það sammerkt að taka á nánasta umhverfi nemendanna – það er Skagafirði.

Jóhanna Helga Þorkelsdóttir

Á heiðinni

300.000

Einkasýning í Listasal Garðabæjar sem opnuð var fyrir viku! Listamaðurinn hefur áhuga á að búa til lifandi samtal á milli náttúrunnar og hins manngerða. Viðfangsefnið að þessu sinni er Hellisheiði, en þar leitar listamaðurinn fanga í síbreytilegu landslagi, þar sem takast á kraftar náttúrunnar og viðleitni mannsins til að fanga, virkja og nýta þá krafta og orku.

Náttúrusetrið á Húsabakka ses (Hjörleifur Hjartarson)

Friðland fuglanna

300.000

Sýning fyrir börn á öllum aldri um fugla, votlendi og náttúruvernd sem er eins konar gestastofa fyrir Friðland Svarfdæla og þjónar um leið starfsemi Náttúrusetursins. Sérstaða sýningarinnar felst í myndrænum, óhefðbundnum framsetningum, skemmtilegum og fróðlegum upplýsingum sem koma stundum á óvart. Beinar vísanir eru frá sýningunni og út í Friðlandið. Verndun votlendis og náttúruvernd eru sérstaklega til umræðu.

Hið íslenska bókmenntafélag

Umhverfisrit er nýlegur bókaflokkur Bókmenntafélagsins. Flokknum er ætlað að auka aðgengi almennings á Íslandi að grundvallaratriðum umhverfismála og þannig stuðla að upplýstri orðræðu um málaflokkinn.

Kolefnishringrásin

400.000

Höfundur er Sigurður Reynir Gíslason jarðefnafræðingur.

Mannkynið hefur mikil áhrif á hringrás kolefnis þannig að hún raskast á flókinn og stundum illfyrirsjáanlegan hátt. Rýnt er í þessi áhrif mannsins og sérstök áhersla er lögð á Ísland í þessu samhengi.

Þar sem fossarnir falla
400.000

Höfundur er doktor Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur, sem fyrr í dag varði doktorsritgerð sína um sama efni og bók þessi byggir á.

Frásögn af rannsókn á umræðu um vatnsaflsvirkjanir frá byrjun 20. aldar og fram á okkar daga. Meginrannsóknarspurningin er: Hvaða þættir í íslenskri náttúrusýn leiddu til hinnar miklu deilu og klofnings þjóðarinnar sem spratt af virkjanaáformum og -framkvæmdum á Norðausturlandi?

K. Hulda Guðmundsdóttir

Áhrif ógnandi þátta á votlendi við Skorradalsvatn   

400.000

Viðmiðunarrannsókn á ástandi votlendis til að kanna áhrif ógnandi þátta á votlendið. Fyrri rannsókn var gerð árið 1998. Votlendið á Fitjum telst vera einstök og verðmæt mýrargerð. Meðal ógnana má nefna: sveiflur í vatnsborði vegna raforkuframleiðslu og framandi og ágengar plöntutegundir.

Orri Páll Jóhannssson og Helena Óladóttir

Menntun til sjálfbærni

500.000

Námskeið til að auka færni grunnskólakennara í viðfangsefnum menntunar til sjálfbærrar þróunar. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á hagnýtar leiðir, þátttöku og virkni kennara.

Í drögum að nýrri aðalnámskrá er fjallað um menntun til sjálfbærni sem eina af fimm meginstoðum nýrrar menntastefnu.

 

Sara Sigurbjörns-Öldudóttir

Sjálfgefin sjálfbærni?  Viðhorf til verndunar og nýtingar náttúrunnar meðal ungbænda og bænda í lífrænni ræktun           

500.000

Mastersrannsókn í félagsfræði við HÍ. Rannsóknin mun kanna túlkun á hugtakinu sjálfbærri þróun, viðhorf til umhverfismála og félagslega þætti því tengdu meðal ungra bænda og bænda í lífrænni ræktun.

Grasagarður Reykjavíkur

Ef plöntur gætu talað - fræðsla um umhverfismál

500.000

Gerð og þróun fjögurra námsverkefna um plöntur og umhverfismál. Verkefnin eiga að vera tiltæk á heimasíðu safnsins og styðja við útinám um allt land. Verkefnin eru fyrir leikskóla og grunnskóla.

Sigríður Klara Böðvarsdóttir

Einangrun erfðavísis glólita í íslenska hestinum

500.000

Verkefnið gengur út á einangrun og skilgreiningu á erfðavísi glólita, sem er fágætur litur meðal hesta en vert er að varðveita í íslenska hestinum. Niðurstöður verða kynntar hestaræktendum í því augnamiði að viðhalda einkenninu og jafnframt í vísindatímaritum. Þetta er í 2. sinn sem verkefnið fær styrk.

Ragnhildur Sigurðardóttir

Vatnafar og endurheimt votlendis í Flóa

600.000

Verkefninu er ætlað að safna grunnupplýsingum um vatnafar 360 ha votlendis í Flóa til að meta árangur fyrirhugaðrar endurheimtar. Megintilgangurinn er að skapa faglegan grunn, þar sem samband vatnafars á röskuðu landi og árangur endurheimtar votlendis verður skoðaður í víðu samhengi.

 

Þorvarður Árnason

Breði

600.000

Heimildamynd um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga, einkum með tilliti til Hoffellsjökuls í Nesjum. Fylgst er með og myndaðar um eins árs skeið þær breytingar sem verða á jöklinum. Auk þess að sýna fram á hopun jökla mun myndin varpa ljósi á þær áhugaverðu og tilkomumiklu breytingar sem verða á ásýnd skriðjökla frá einni árstíð til annarrar. Þetta er í 2. sinn sem verkefnið fær styrk.

 

Lára Jóhannsdóttir

Norræn vátryggingafélög og umhverfismál

700.000

Verkefnið er þverfagleg doktorsrannsókn á sviði viðskipta og umhverfismála og tekur til norrænna vátryggingafélaga. Með rannsókninni er leitað svara við því hvers vegna umhverfisstjórnun er mikilvæg fyrir rekstur vátryggingafélaga og hvaða áhrif vátryggingafélög geta haft á lausn umhverfislegra vandamála sem við er að glíma.

Sögusetur íslenska hestsins (Arna Björg Bjarnadóttir)

Hesturinn í náttúru Íslands

800.000

Sýning á ljósmyndum og vídeóverki sem endurspegla tengsl íslenska hestsins við náttúru landsins. Íslenski hesturinn hefur allt frá landnámi alist upp í náttúru landsins. Hann er hluti af henni og hefur mótast af aðstæðum hennar. Myndirnar endurspegla andstæður þessara aðstæðna, sem geta verið bæði erfiðar og ljúfar. Jafnframt er dregin fram fegurðin í því hversdagslega í lífi hestsins.

Hálendisferðir (Ósk Vilhjálmsdóttir)

Náttúrulega    

800.000

Ferðir, eða námskeið, fyrir börn og unglinga þar sem lögð er áhersla á náttúruskoðun og að efla tengsl þátttakenda við landið og örva um leið athyglisgáfu og næmni með því að nýta aðferðir úr myndlistarnámi og kennslu. Þetta er í 2. sinn sem verkefnið fær styrk.

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum (Hjalti Þórðarson)

Göngukort af Tröllaskaga

800.000

Verkefnið snýst um gerð göngukorta af Tröllaskaga með yfirheitinu Gönguleiðir á Tröllaskaga. Stefnt er að því að gefa út fimm kort af svæðinu norðan Hörgárdalsheiðar. Göngukort nr. 1 og 2 eru komin út en kort nr. 3 og 4 eru í vinnslu núna. Kortunum fylgja leiðarlýsingar. Þetta er í 2. sinn sem verkefnið fær styrk.

Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (Björn Guðbrandur Jónsson)

LAND-NÁM, útiskóli GFF   

800.000

Samstarfsverkefni GFF við grunn- og framhaldsskóla um samþættingu uppgræðslu og upplýsingatækni. Fléttað er saman útinámi og námi inni í skólastofunni þannig að hvoru tveggja fái aukna merkingu og jarðtengingu. Ákveðnum aðferðum og verklagi er beitt og mælingar gerðar sem nemendur vinna síðan úr. Nemendur fara í nokkur skipti á vettvang og geta því betur fylgst með framvindunni í náttúrunni.

 

Herdís Þorvaldsdóttir
Fjallkonan hrópar á vægð

1.000.000

Heimildamynd um orsakir gróðureyðingar á Íslandi og baráttu Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu gegn henni. Handritshöfundur er Ólafur Egill Egilsson, framleiðandi Lífsmynd ehf og meðframleiðandi er Harpa Fönn Sigurjónsdóttir.

 

Landvernd

Átak gegn utanvegaakstri

1.000.000

Utanvegaakstur er orðið alvarlegt vandamál í náttúru Íslands. Með styrk sínum vill NPJ styðja Landvernd til að hrinda af stað átaksverkefni þar sem frjáls félagasamtök, aðilar í ferðaþjónustu, fjölmiðlar, stjórnvöld að ógleymdum hagsmunasamtökum mótorhjóla- og bíleigenda leggja saman. Markmiðið er að snúa almenningsálitinu gegn utanvegaakstri.

Laxfiskar ehf (Jóhannes Sturlaugsson)

Þingvallaurriðinn

1.000.000

Náttúrulífsmynd um lífshætti urriðans í Þingvallavatni. Safnað hefur verið myndefni á síðustu tíu árum um þennan merkilega fisk sem skartar sögufrægri fortíð veiðisagna og lífshátta í Þingvallavatni. Samstarfsmenn Jóhannesar líffræðings eru þeir Erlendur Guðmundsson kafari og Friðrik Þór kvikmyndagerðarmaður.

 

Náttúrustofa Norðausturlands

Handbók í umhverfistúlkun

1.000.000

Íslensk handbók um umhverfistúlkun, hugmyndafræði og aðferðir, þar sem lögð er áhersla á að staðfæra efnið fyrir íslenskar aðstæður.      Umhverfistúlkun er ákveðin leið í leiðsögn um náttúruna. Þar er mikil áhersla á að skynja og njóta. Viðurkennd og mikið notuð aðferð meðal landvarða. Umsjón með verkinu hefur Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir fyrrum þjóðgarðsvörður.

 

Teiknistofan Eik, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Háskólasetur Vestfjarða

Nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða

1.000.000

Verkefnið felst í að gera samþætta nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Vestfjarða og stuðla þannig að sjálfbærri nýtingu til hagsbóta fyrir samfélag, efnahagslíf og umhverfi. Nýtingaráætlun mun, til skemmri og lengri tíma litið, efla sérstöðu svæðisins, samfélags- og umhverfisvitund íbúa og möguleika á samstarfi fyrirtækja og íbúa.

 

Goðsögn - kvikmyndagerð (Steingrímur Þórðarson og Lind Einarsdóttir)

Krækiberjablús

2.000.000

Heimildarmynd um hvernig nýta megi betur í matargerð og til gleði það sem náttúran gefur okkur. Horft verður á náttúru Íslands með augum sælkerans. Mikið verður lagt upp úr fallegri myndatöku og náttúran mun leika stórt hlutverk í myndinni.

Norræna húsið  

Endurbætur á friðlandinu í Vatnsmýrinni

2.000.000

Ætlunin er að tryggja Tjarnarfuglum örugg varplönd og endurheimta líffræðilegan fjölbreytileika á svæðinu. Endurbætur munu byggja á vísindalegum rannsóknum og miðla á þekkingu til almennings. Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman um verkefnið með Norræna húsinu.

Vanda Sigurgeirsdóttir

Börn og náttúra

2.000.000

Doktorsrannsókn við Félagsvísindasvið HÍ þar sem markmiðið er að gera umfangsmikla rannsókn sem snýr að sambandi barna á Íslandi við náttúruna. Í kjölfar rannsóknar er ætlunin að miðla þekkingu og þar verður eitt af markmiðunum að hvetja fjölskyldur til að vera meira úti í náttúrunni.

Daníel Bergmann

Fálkinn á Íslandi

2.000.000

Bók um fálkann í íslenskri náttúru, samspil hans við rjúpuna og samskipti manna og fálka í gegnum tíðina. Markmiðið er að veita innsýn í líf og umhverfi fálkans á Íslandi, hvetja til verndunar búsvæða hans og til sjálfbærrar nýtingar rjúpnastofnsins. Bókin sýnir myndir og ritgerðir Daníels Bergmanns ásamt kafla Ólafs K. Nielsen fuglafræðings um líf- og vistfræði fálkans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir