Fjölbreytt dagskrá á menningarminjadeginum

þingeyararkirkja réttMenningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 6. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð.

 Í Skagafirði verður opið í Glaumbæ milli 09:00 og 18:00 og einnig verður Víðimýrarkirkja opin frá 12:00 til 16:00. Aðgangur að báðum stöðunum verður ókeypis þennan dag í tilefni af menningarminjadeginum. Þá mun Þór Hjaltalín minjavörður Fornleifaverndar ríkisins á Norðurlandi vestra flytja erindi  í þjónustuhúsinu á Þingeyrum kl. 14:00. Fyrirlesturinn nefnist Fornbýli í Vatnsdal og Þingi. Að fyrirlestri loknum verður farið á valda staði í Vatnsdal og þeir skoðaðir undir leiðsögn Þórs. Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir