Fákaflug 2009
Fákaflug verður haldið dagana 25.-26. júlí n.k á Vindheimamelum. Að vanda verður keppt í gæðingakeppni í sérstakri forkeppni með þrjá inná í einu. Einnig verða kappreiðar og boðið verður upp á nýjung með töltkeppni á beinni grasbraut.
Keppnisgreinarnar verða:
A.-flokkur 100 m. skeið, fljótandi start
B.-flokkur 150 m. skeið, kappreiðar
Ungmennaflokkur 250 m. skeið, kappreiðar
Unglingaflokkur 300 m. brokk, kappreiðar
Barnaflokkur 300 m. stökk, kappreiðar
Tölt á beinni grasbraut
Skráning þarf að berast fyrir þriðjudaginn 21. júlí n.k. til Unnar á netfang unnur-olof@simnet.is.
Skráningargjald kr. 2.500,- fyrsta skráning en kr. 1.000,- eftir það. Ekkert skráningargjald tekið í brokk- og stökkkappreiðum. Skráningargjöld greiðast inn á bankareikning: 0310-26-1630, kt. 520705-1630.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.