Engin miskun hjá Karli þjálfara

 

Hópurinn sem mætti stundvíslega í morgun; Svenni, Helgi Rafn, Helgi Freyr, Svavar, Hreinn, Einar Bjarni, Pálmi Geir og Hákon. Rikki, Sigmar Logi og Ingvi komu skömmu síðar.

Úrvaldsdeildarlið Tindastóls í körfubolta  mætti á sína fyrstu útihlaupaæfingu í morgun kl. 6 stundvíslega. Strákarnir stefna á að mæta til leiks í október í toppformi og ætla því að mæta á hlaupabrautina þrjá morgna í viku næstu átta vikurnar.

Bræðurnir Svavar og Hreinsi hlaupa eins og vindurinn.

Það voru 11 hörkutól sem mættu á hlaupaæfingu meistaraflokks kl. 6 í morgun. Var þetta fyrsta æfingin af þessu tagi.

Að hlaupunum loknum. Ekki annað að sjá en menn hafi skemmt sér konunglega og þetta hafi verið leikandi létt.

Veðrið var gott, smá rigning og logn og hið ákjósanlegasta hlaupaveður.

Ákveðið hefur verið að leyfa áhugasömum stuðningsmönnum að koma og horfa á útihlaupin á morgnana og jafnvel fá að taka þátt í þeim sér að kostnaðarlausu

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir