Elías B Halldórsson - Málverk / svartlist

Áskell Heiðar fulltrúi Skagafjarðar og Sigurlaugur Elíasson

Á föstudaginn síðastliðinn bauð Sveitarfélagið Skagafjörður fólki á bókarkynningu á Mælifelli í tilefni þess að bók er komin út um listmálarann Elías B Halldórsson sem lengi bjó á Sauðárkróki. Elías var mikilhæfur listmálari og eru verk hans víða að finna jafnt á heimilum fólks, á söfnum eða prýða veggi hinna ýmsu stofnana landsins.

 

 

Bókin um Elías B. Halldórsson er yfirgripsmikið verk og var ekkert til sparað við gerð hennar. Mjög víða var leitað fanga við eftirtökur og ljósmyndun listaverka Elíasar svo bókin yrði sem sannastur vitnisburður um þennan fjölhæfa og margslungna listamann.

Bókin er í stóru broti, 240 blaðsíður á vönduðum pappír og ítrustu kröfur gerðar, jafnt við undirbúning, ritun og myndvinnslu sem hönnun, prentun og frágang. Fjöldi fólks hefur lagt hönd á plóg við gerð bókarinnar og haft það að leiðarljósi að hún megi verða sem glæsilegust og bera listamanninum Elíasi B. Halldórssyni fagurt vitni.

Burðarvirki bókarinnar er að sjálfsögðu myndlist Elíasar sem kynnt er í þremur hlutum undir heitunum Maður / Náttúra - Hús / Land og Afstrakt. Umsjón með ljósmyndun verkanna hafði Nökkvi Elíasson.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur ritar um feril og myndlist Elíasar í grein sem nefnist Sólbræddir vængir.
Einar Falur Ingólfsson fjallar um ljóða- og bókaskreytingar Elíasar auk þess að rita formála bókarinnar.
Í bókinni er birt smásagan Gamli málarinn eftir Gyrði Elíasson.
Einn þáttur bókarinnar nefnist Viðhorf / Skoðanir en þar er tekið saman það helsta sem Elías lét hafa eftir sér um listina og tilveru listamannsins.
Í ítarlegum bókarauka er að finna margskonar upplýsingar; ævistiklur, ferilskrá, sýningayfirlit og ýmislegt fleira.
Ritstjórn verksins var í höndum sona Elíasar, Sigurlaugs, Gyrðis og Nökkva.
Sigurlaugur Elíasson og Aðalsteinn S. Sigfússon stýrðu hönnun bókarinnar.
Allur texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku. Allan Rettedal og
Sarah Brownsberger sáu um enska þýðingu.
Það er bókaútgáfan Uppheimar sem gefur bókina út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir