Eldur kviknaði í bifreið við Blönduós

Mynd: Róbert Daníel.
Mynd: Róbert Daníel.

Á Facebook-síðu Brunavarna Austur-Húnvetninga kemur fram að eldur hafi kviknað í dísel bifreið á þjóðvegi 1 rétt vestan við Blönduós sl. sunnudag. Fjögra manna fjölskylda var í bifreiðinni en sakaði ekki.

Samkvæmt færslu Brunavarna gekk slökkvistarf greiðlega en bifreiðin er gjörónýt. Eftir að hún var dreginn á brott sinnti slökkviliðið upphreinsun á vettvangi.

Meðfylgjandi myndir tók Róbert Daníel Jónsson á Blönduósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir