Byggðastofnun og Háskólinn á Hólum í samstarf

Anna Guðrún Edvardsdóttir, Arnar Már Elíasson, Hólmfríður Sveinsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Hanna Dóra Björnsdóttir. Mynd: Byggðastofnun.
Anna Guðrún Edvardsdóttir, Arnar Már Elíasson, Hólmfríður Sveinsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Hanna Dóra Björnsdóttir. Mynd: Byggðastofnun.

Föstudaginn 9. nóvember var skrifað undir samkomulag milli Byggðastofnunar og Háskólans á Hólum um samstarf sem einkum er ætlað að stuðla að auknu samtali og samstarfi í atvinnu- og byggðaþróun.

Á heimasíðu Byggðastofnunar kemur fram að Arnar Már Elíasson, forstjóri stofnunarinnar, og Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs, hafi skrifað undir fyrir hönd Byggðastofnunar og Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor, og Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknarstjóri, fyrir hönd Háskólans á Hólum.

„Samstarf hingað til hefur verið farsælt en með því að setja um það umgjörð, meðal annars með áformum um reglubundið samráð, fræðslu og rannsóknir, standa vonir til að stuðlað verði að auknum ávinningi og áframhaldandi byggðaþróun landsbyggðanna. Tengiliðir samstarfs eru Hanna Dóra Björnsdóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar, og Anna Guðrún Edvardsdóttir, rannsóknarstjóri Háskólans á Hólum,“ segir í tilkynningu Byggðastofnunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir