Byggðaráð lýsir áhyggjum af óvissu um fiskveiðistjórnunarkerfið

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsir í ályktun sem það sendi frá sér um helgina  þungum áhyggjum yfir þeirri óvissu er ríkir um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Byggðarráð hvetur stjórnvöld til að standa vörð um stöðu og framtíð sjávarbyggðanna ekki síst  í ljósi þeirrar óvissu sem nú ríkir um land allt eftir efnahagshrunið.  Í ályktuninni segir -Sjávarútvegur er ein af mikilvægustu undirstöðum atvinnulífs í Skagafirði og byggir fjöldi fólks beint og óbeint afkomu sína á honum.  Tryggja verður með óyggjandi hætti að ef breytingar verða gerðar á fiskveiðistjórnunarkerfinu miði þær að því að tryggja betur störf þeirra  þúsunda sem í sjávarútvegi starfa og auki atvinnuöryggi í sjávarbyggðunum ásamt því að treysta stöðu fyritækja í sjávarútvegi. Byggðarráð bendir á mikilvægi þess að stjórnvöld hafi náið samráð við hagsmunaðila og sveitarstjórnir áður en ráðist er  í grundvallarbreytingar í svo veigamiklum málaflokki sem sjávarútvegurinn er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir