Brautskráningu frestað vegna hestaveikinnar
![]() |
![]() |
![]() |
Ákveðið hefur verið að fresta brautskráningu Háskólans á Hólum sem vera átti 21. maí til 3. september. Þetta er gert vegna veikinda í skólahestum og nemendahestum sem valda því að ekki tekst að ljúka prófum í hestafræðideild fyrir tilsettan tíma. Mjög margir hestar á Hólum hafa tekið pestina. Það tekur hrossin um þrjár til fjórar vikur að komast yfir veikindin og það er mjög mikilvægt fyrir þau að fara varlega af stað. Við vonum að hestarnir fái góðan bata og að útskriftarathöfnin í haust verði glæsileg og góð uppskeruhátíð Háskólans á Hólum árið 2010. |
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.