Alls voru gefnar út 333 veðurviðvaranir árið 2024
Á vedur.is segir að gefnar voru út samtals 333 viðvaranir vegna veðurs árið 2024, þar af 29 appelsínugular en engin rauð. Sá fjöldi er svipaður og árið áður, en frá 2018 hafa að meðaltali 373 viðvaranir verið gefnar út á ári. Árið 2024 var því heldur undir meðallagi síðustu ára. Eins og sjá má á meðfylgjandi súlnariti þá voru gefnar út 28 gular og sjö appelsínugular veðurviðvaranir á Norðurlandi vestra árið 2024.
Viðvaranir dreifðust misjafnlega eftir spásvæðum, flestar viðvaranir voru gefnar út á Suðausturlandi, 41 talsins, og á Breiðafirði og Vestfjörðum voru gefnar út 40. Fæstar voru á höfuðborgarsvæðinu, 14 talsins. Í öðrum landshlutum var fjöldi viðvara á bilinu 20 til 35. Á Norðurlandi eystra voru flestar appelsínugular viðvaranir gefnar út, sjö talsins. Oftast var varað við vindi og hríð, samtals 279 viðvaranir, en 54 viðvaranir voru gefnar út vegna asahláku, rigningar og snjókomu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.