Æfingabúðir í júdó í Varmahlíð um helgina
Næstkomandi helgi, 11. til 13. ágúst, verða haldnar æfingabúðir í júdó í íþróttahúsinu í Varmahlíð. Búist er við yfir sextíu júdóiðkendum frá Linköping og Stokkhólmi í Svíþjóð, Júdódeild Ármanns í Reykjavík, Pardusi á Blönduósi, Draupni á Akureyri ásamt Júdódeild Tindastóls. Leiðbeinendur verða m.a. Yoshihika Iura 8. dan og Ann Löf 6. dan, sem búa bæði yfir mikilli þekkingu og reynslu í íþróttinni.
Á heimasíðu Júdódeildar Tindastóls segir að æfingabúðirnar verði opnar fyrir alla júdóiðkendur á svæðinu og er ekkert gjald tekið fyrir. Einnig eru allir velkomnir að kíkja við og fylgjast með æfingunum, sem verða á eftirfarandi tímum:
Dagur Tími
Föstudagur 11. ágúst 18:00 - 19:30
Laugardagur 12. ágúst 10:00 - 11:30
Sunnudagur 13. ágúst 10:00 - 11:00
Sunnudagur 13. ágúst 11:00 - 12:30
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.