Velur þú að loka barnið þitt inni í her­bergi með barna­níðingi?

Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND
Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND

Skjátími barna og ungmenna er oft í samfélagsumræðunni og þá aðallega hvort banna eigi snjallsíma í skólum. Sjálf hef ég meiri áhyggjur af því HVAÐ á sér stað í snjalltækjunum heldur en HVAR það á sér stað. Rannsóknir sýna að samfélagsmiðlar auka vanlíðan barna og kvíða fyrir utan markaðshyggjuna sem þar ríkir. Það er skammgóður vermir að varpa ábyrgðinni yfir á skólana með einhverskonar símabanni. Snjalltæki í skólum eru nýtt til náms og í þeim tækjum er ekki aðgangur að Snapchat eða Tiktok. Samfélagsmiðlanotkun er samfélagsvandi og þar bera foreldrar ábyrgðina. Það er tímabært að samfélagið horfist í augu við það og axli þá ábyrgð en varpi henni ekki annað.

13 ára aldurstakmark þessara miðla snýst ekki um að þá hafi börn þroska til þess að vera á samfélagsmiðlum, heldur er það löglegt fyrir stóru risana á bak við miðlana að safna gögnum um notendur sína þegar þeir hafa náð 13 ára aldri. Samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni eru um 60% barna á Íslandi á aldrinum 9-12 ára með aðgang að TikTok og Snapchat.

Snapchat er einstaklega varhugaverður staður þar sem fólk er gjarna undir dulnefni og auðvelt að bæta við nýjum "vinum". Þar er líka erfitt fyrir foreldra að fylgjast með því skilaboð og myndir hverfa. Samkvæmt íslensku æskulýðsrannsókninni segja 35% barna á miðstigi og 65% barna á unglingastigi að foreldrar þeirra athugi aldrei hvað þau eru að gera á netinu.

Undanfarið gert ég gert óformlega tilraun og samþykkt vinabeiðnir á Snapchat frá ýmsum aðilum. Undantekningarlaust koma skilaboð um hæl þar sem ég er spurð um aldur og sagt að senda mynd. Það er verið að kanna hvað sé hægt að vinna með á hinum endanum. Beiðnirnar skipta tugum og nýjar bætist við daglega, áreitið er gríðarlegt. Börn ráða eðlilega ekki við slíkt áreiti og kunna ekki að setja mörk í þessum samskiptum.

Samkvæmt fyrrnefndri rannsókn hafa 58% unglingsstúlkna í 10. bekk á Íslandi orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi og 35% drengja, allt í gegnum samfélagsmiðla. Þetta eru gríðarlega háar tölur en líka tölur sem einfalt er að breyta til batnaðar.

Svo mig langar að spyrja foreldra að eftirfarandi: mynduð þið loka barnið ykkar inni í herbergi með ókunnugum þegar líkurnar eru meiri en minni á að það lendi í aðstæðum sem það ræður ekki við eins og kynferðislegu áreiti eða misnotkun?

Ekki? Þá þurfa foreldrar að hafa kjark og vit til að segja NEI við samfélagsmiðlanotkun barna.

Fyrir þeirra öryggi, því ábyrgðin er okkar foreldranna.

Álfhildur Leifsdóttir, grunnskólakennari og foreldri í Skagafirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir