Tilkynning um framboð

Hafdís Gunnarsdóttir
Hafdís Gunnarsdóttir

Ég, Hafdís Gunnarsdóttir, gef kost á mér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í norðvestur kjördæmi sem haldið verður þann 3. september 2016 og sækist eftir 3. sæti á listanum. Ástæðan fyrir því að ég býð mig fram er að ég sé ótal tækifæri til að efla svæðin í þessum víðferma kjördæmi og vil með þessum hætti ganga beint til verka.

Ég tók nýverið við starfi forstöðumanns liðveislu hjá Ísafjarðarbæ, en hef síðastliðin þrjú ár gegnt starfi ráðgjafa hjá barnavernd á norðanverðum Vestfjörðum. Þar áður vann ég sem kennari frá árinu 2004.

Ég hef verið virkur félagi í Sjálfstæðisflokknum í Ísafjarðarbæ í mörg ár og gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Ég er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Sjálfstæðisflokksins.

Ég er 36 ára gömul, gift Shiran Þórissyni fjármálastjóra og eigum við tvo syni. Ég er fædd og uppalin á Ísafirði en bjó í Reykjavík á árunum 2000-2004 á meðan ég nam iðnrekstrarfræði við Tækniháskóla Íslands. Að því loknu flutti ég aftur til Ísafjarðar og lagði stund á fjarnám frá Háskólanum á Akureyri. Ég útskrifaðist þaðan árið 2008 með B.Ed. í grunnskólakennarafræði. Mér finnst það vera forréttindi að búa með fjölskylduna mína út á landi og er tilbúin til að vinna fyrir kjördæmið mitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir