Kæru félagar

Bjarni Jónsson
Bjarni Jónsson

Nú stendur yfir kosning í forvali Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Ég býð mig fram til að leiða listann í 1. sæti. Skráðir félagar 21. ágúst sl. hafa rétt til þátttöku og hafa fengið kjörseðla með nöfnum frambjóðenda og raða í 6 efstu sætin. Kjörseðilinn þarf að setja í póst í umslögum sem fylgja. Umslagið þarf að stimplast í síðasta lagi mánudaginn 5. september. Mikilvægt er að svæðið, kjördæmið og landsbyggðin öll hafi öfluga talsmenn á Alþingi.

Það er ákveðin ástríða sem fylgir pólitík og mörg ykkar kannast við sem viljið hafa áhrif á eigið samfélag; og koma góðum hlutum til leiðar. Ég tel mig hafa góða reynslu af því að vinna að málum landsbyggðarinnar bæði á héraðs- og landsvísu. Hins vegar liggur fyrir að mörgum hlutum í héraði kemur maður ekki áfram nema með því að vinna að á landsvísu og hafa áhrif á löggjöf og fjárveitingar fyrir landið allt.  Maður þarf að keyra vegina sem maður talar fyrir. Hitta fólkið sem maður ætlar að vinna fyrir til að þekkja og skapa nánd við aðstæður þess og hagsmuni. Það hef ég gert og mun svo sannarlega gera fái ég til þess traust að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi.

Ég bið um stuðning ykkar lesendur góðir sem hafið nú forvalsseðlana á borðum ykkar.

Með baráttukveðjum

Bjarni Jónsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir