Flemming-púttmót á Hvammstanga

Keppendur mótsins. Aðsend mynd.
Keppendur mótsins. Aðsend mynd.

Föstudaginn 26. júlí á héraðshátíð Vestur-Húnvetninga – Eldur í Húnaþingi - fór fram í fjórtánda sinn púttmót Flemming Jessen sem hefur staðið að þessu móti með hjálp góðra vina á Hvammstanga frá 2011. Aðstaða til keppni var sæmileg, smá rekja og völlur nokkuð loðinn, en þátttakendur létu það ekki á sig fá. Að þessu sinni var þátttaka lítil, en þeir sem mættu skemmtu sér vel í leiknum og nutu smá hressinga sem í boði voru. Leiknar voru 2 x 18 holur alls 36. 

Úrslit – konur

  1. Ragnheiður Jónsdóttir - Borgarbyggð 73 högg
  2. Dorot Gluszuk - Borgarbyggð 78 högg
  3. Ásdís Baldvinsdóttir - Borgarbyggð 79 högg

Úrslit – karlar

  1. Ólafur Davíðsson - Borgarbyggð 74 högg
  2. Marteinn Reimarsson - Hvammstanga 76 högg
  3. Þorbergur Þórðarson - Akranesi 78 högg

Úrslit – drengir

  1. Adam Vilberg Örvarsson – Mosfellsbæ 96 högg

Flemming Jessen vill koma því til stjórnenda Húnaþings vestra að leggja meiri metnað í umhirðu á þessum bletti eins og aðra gróðurbletti í sveitarfélaginu því völlurinn sé á góðum stað og mjög skemmtilegur. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir