Vörðum leiðina saman – Skráningu lýkur í dag
Í október býður innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fundur fyrir íbúa Norðurlands vestra verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 20. október kl. 15-17.
Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í nokkrum helstu málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.
Við hvetjum íbúa til að taka þátt í fjarfundinum sem haldinn er í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef Stjórnarráðsins. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur í dag, miðvikudaginn 19. október.
/Tilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.