Veðrið er oft hreinlega eins og hugur manns - Veðurklúbbur Dalbæjar

Mynd. Bjór. (En ekki hvað?)
Mynd. Bjór. (En ekki hvað?)

Fundargerð Veðurklúbbs Dalbæjar fyrsta ágúst 2023, eða átti ég að skrifa tvöþúsund tuttugu og þrjú 🤔

Mætt voru, Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Jón Garðarsson, Sigríður Björk Hafstað, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Þorgerður Sveinbjarnardóttir, Nanna Regína Hallgrímsdóttir, Kristján Loftur Jónsson, Þóra Jóna Finnsdóttir, Hallfríður Árnadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ulla May V Rögnvaldsson og Ragnhildur Von Weisshappel.

Eftir að við höfðum huggað hvort annað í svolitla stund vegna þess hve spá klúbbsins brást hraparlega fyrir júlí mánuð þá var það samþykkt að líklegasta ástæðan væri að fundurinn var haldinn viku fyrir venjulegan fastan fundartíma, sem er fyrst þriðjudag hvers mánaðar. Og það hafi því væntanlega sett skynjun allra rækileg úr skorðum, því aldrei þessu vant voru allir einmitt sammála um spá júlí fundarins. Ritari klúbbsins átti sök á því að fundurinn var haldin fyrr, eins og sumu öðru og lofaði að reyna allt sem hann gæti til að þetta kæmi ekki fyrir aftur.

En snúum okkur þá að spá ágústmánaðar.

Það er vonandi til góðs að núna voru félagar ekki alveg sammála um komandi tíð, en eins einkennilega og það hljómar og ég nefndi hérna að ofan þá virðist það ekki henta að allir séu sammála. En eftir samantekt úr draumum, rúnum, tunglkomum, Hundadaga tengingu og tilfinningum þá er niðurstaðan sú að ágúst verður að mestu svipaður og júlí hérna á stór Dalvíkursvæðinu. Nefnilega ágætis veður en áfram að mestu að norðan með engum afgerandi hlýindum, skýjuðu að hluta en góðu skyni inn á milli.

En ég vil persónulega minna á það að veðrið er oft hreinlega eins og hugur manns…. bjart ef við tökum mest eftir því en dimmt ef hugurinn er mest stilltur þangað.

Munum því að njóta alls þess góða sem við mögulega getum og reynum svo bara að líta framhjá hinu ef hægt er 😉😁😘

Eftirfarandi vísa á þar ágætlega við.

Sól er á hádegi í suðri
Sagt er að vonirnar fuðri
Lesa skal söguna sína
Síðan úr gullkornin tína.

Höf. Óþekktur.

Allir dagar eiga kvöld
Allar nætur daga
Þannig verða árin öld
Og öldin mannkynssaga.

Höfundur mögulega nefndur síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir