Úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra 2023

Opnað verður fyrir umsóknir í úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra fyrir árið 2023 mánudaginn 26. september nk. Í tilkynningu á vef SSNV segir að umsóknarfrestur sé til kl. 16:00 þriðjudaginn 1. nóvember 2022. Veittir eru styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir til menningarstarfs og stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs.

„Starfsmenn SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma þegar nær dregur þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi,“ segir í tilkynningunni en vinnustofurnar verða auglýstar síðar.

Sótt er um á rafrænni umsóknargátt. Frekar leiðbeiningar má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir