Upphafsfundur rammasamnings með sveitarfélögum um aukið framboð á húsnæði

Flogið yfir Akureyri. Mynd af Hms.is.
Flogið yfir Akureyri. Mynd af Hms.is.

Næstkomandi mánudag 12. september kl.12.00 verður haldinn upphafsfundur um rammasamning á milli ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða á árunum 2023-2032. Fundurinn verður haldinn hjá HMS í Borgartúni 21 en honum verður jafnframt streymt í gegnum Teams.

„Fram til þessa hefur vantað skýra sýn hversu margar íbúðir þarf að byggja á hverjum tíma á landinu. Í fyrsta sinn hafa ríki og sveitarfélög gert með sér samkomulag um sameiginlega sýn á aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði til tíu ára,“ segir á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Á fundinum mun Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, fara yfir umgjörð rammasamningsins og vinnuna sem er framundan í þeim efnum. Á næstunni mun fara fram náið samtal milli ríkisins og sveitarfélaga landsins þar sem staðan verður metin og verkefnið unnið áfram á þeim grundvelli.

Dagskrá fundarins:

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Elmar Erlendsson, teymisstjóri húsnæðisáætlana hjá HMS

Fundarstjóri: Karlotta Halldórsdóttir, samskiptastjóri HMS

Þau sem ætla sér á fundinn, sem fram fer í húsakynnum HMS að Borgartúni 21, er beðið um að skrá sig en honum verður jafnframt streymt.

Hlekk á streymið má nálgast HÉR
Skráning fer fram HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir