Umferð hleypt á nýja Þverárfjallsveginn

Horft 25. september af túninu á Syðra-Hóli í suðaustur, Langadalsfjall til vinstri, síðan Dalverpi austan Kaldbaks þar sem Refsborg ber hæst í 288 m. Efri-Lækjardalur til hægri í Refasveit. Skagastrandarveglínan kemur úr norðvestri með mjúkri beygju um nýju Laxárbrúna og síðan til suðurs, einstaklega falleg veglína. Stuttu sunnan við brúna er komið á Þverárfjallsveginn. MYND: HÖRÐUR INGIMARSSON

Umferð hefur verið hleypt á nýja hluta Þverárfjallsvegar á milli Blönduóss og Skagastrandar. Um er að ræða átta kílómetra langan kafla í Refasveit og Skagastrandarveg. Þrátt fyrir að opnað hafi verið fyrir umferð þá er enn verið að vinna við veginn. Hraði hefur verið tekin niður í 70 km/klst vegna steinkasts og eru vegfarendur beðnir um að fara varlega og virða merkingar.

Samkvæmt upplýsingum Feykis stendur til að opnunarhátíð og vígsla á nýja veginum verði upp úr miðjum októbermánuði.

Einnig er nú unnið að vegagerð á Vatnsnesvegi á milli Kárastaða og Skarðs á 8 km kafla. Hjáleið verður merkt á svæðinu. Áætlað er að vinna standi fram á haust 2024

Þá er unnið að uppbyggingu nýs vegar austan til á Laxárdalsheiði, úr Hrútafirði og yfir í Dali. Vegna slitlagsframkvæmda er búið að loka veginum. Áætlað er að opna aftur mánudaginn 2. október Bent er á hjáleið um Bröttubrekku (60) og Holtavörðuheið (1).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir