Þórarinn hefur áhyggjur af framtíð verkalýðshreyfingarinnar
Vísir.is er með Þórarinn G. Sverrisson, formann Öldunnar stéttarfélags í Skagafirði, í viðtali í kjölfar afsagnar Drífu Snædal sem forseta ASÍ. Hann segir framtíð verkalýðshreyfingarinnar svarta eftir sviptingar innan hennar undanfariðeftir að hópur fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum, sem fáir séu spenntir að vinna með.
Þórarinn segir að sér finnist skelfilegt að það skuli vera komið svo að Drífa hafi hrakist úr starfi vegna þess eineltis og ofbeldis sem honum finnst hún hafa orðið fyrir. Á þar væntanlega við málflutning Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formannsEflingar, Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, og VilhjálmsBirgissonar, nýkjörins formanns Starfsgreinasambandsins (SGS), en þau hafa ekki farið leint með gagnrýni sína á Drífu.
„Þau hafa verið með ómálefnalega nálgun á þau málefni sem hafa verið í gangi,“ segir Þórarinn í viðtalinu við Vísi.„Við höfum oft og tíðum orðið fyrir því að menn hafa ekki fengið að ræða málin af því að það er einhver afstaða sem að þau taka og telja út úr korti að verja hana eitthvað frekar. Ég er nú þannig gerður að ég vil alltaf hlusta og skoða það sem aðrir hafa fram að færa, líka þau ekkert síður en aðrir, og mér finnst alltaf betra að heyra andstæð sjónarmið heldur en ekki þegar maður er að velta fyrir sér hvaða afstöðu er best að taka. En þetta hefur ekki gengið því miður og ég verð að segja að ég skil afstöðu Drífu um að segja af sér. Það er engum bjóðandi að vinna undir þessu.“
Hann segist álíta framhaldið innan ASÍ vera dökkt og telur að það veiki hreyfinguna hvernig fólk fer fram með ólátum og linnulausri gagnrýni. „Og gera menn að óvinum sínum og óvinum launafólks… að tala fyrir því að við sem höfum vilja ræða hlutina séum á móti launafólki, þetta er auðvitað alveg stórskrýtin nálgun og ég skil ekki hvernig fólk yfir höfuð nennir að hlusta á fólk sem að hefur svona í frammi,“ segir Þórarinn.
Kjarasamningar verða lausir nú í nóvember og óvíst hvernig verkalýðsfélögin mæta til leiks við samningsgerð enda talsverðar væringar milli félaga.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.