Textílmiðstöðin hýsir Iceland Field School
Fram kemur á heimasíðu Textímiðstöðvarinnar að Iceland Field School frá Concordia háskólanum í Montreal sé lentur á Blönduósi og munu nemendurnir dvelja í Textílmiðstöðinni allan júnimánuð.
Iceland Field School er þverfaglegt, einingarbært námskeið þróað af Dr. Kathleen Vaughan frá Concordia Háskólanum í Montreal, Kanada í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands. Námskeiðið var fyrst haldið í júní 2018 og nú í annað skipti, júní 2022. Þátttakendur eru 13 og munu þau sækja ýmsa kennsla á sviði ullarvinnslu, s.s. spuna, vefnaðar og jurtalitun auk þess að kynna sér hugmyndafræði tengd umhverfis og ferðamálum, safnafræði og þá með textíl í huga.
Fyrsta vinnustofa var haldinn þann 3. júní þar sem Ragnheiður B. Þorsdóttur (lengst til hægri á myndinni) hélt fyrirlestur um vefnað, eða "tapestry weaving by frame".
Fleiri upplýsingar má finna á heimasíðu námskeiðsins:
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.