Stjórn Byggðastofnunar fundar á Skagaströnd

Frá Skagastrond. MYND: ÓAB
Frá Skagastrond. MYND: ÓAB

Það er hefð fyrir því að stjórnarfundir Byggðastofnunar séu haldnir víða á landsbyggðunum og verður næsti fundur á morgun, þriðjudaginn 29.ágúst, haldinn á Skagaströnd. Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar segir mikilvægt fyrir stjórn og starfsfólk að hafa möguleika á að kynna sér helstu áherslur í viðkomandi byggðalagi sem heimsótt er, kynnast starfsemi fyrirtækja og stofnana en einnig að kynna hvernig hægt sé að nýta hin ýmsu verkfæri sem Byggðastofnun hafi yfir ráða, þar sem það á við.

„Við fáum góðar kynningar á morgun, bæði á Rannsóknarsetri Háskólans og BioPol, á starfsemi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar auk þess að heimsækja Nes listamiðstöð. Við verðum í góðum höndum heimamanns, Magnúsar B. Jónssonar sem nýlega lét af störfum sem stjórnarformaður Byggðastofnunar,” segir Arnar.

Auk stjórnarfundanna sem haldnir eru víða á landsbyggðunum, eru fyrirhugaðar heimsóknir til allra sveitarfélaga landsbyggðanna og hafa stjórnendur Byggðastofnunar nú þegar heimsótt Norðurþing og Langanesbyggð sem fyrsta fasa í þeirri fundaröð.

„Reynslan sýnir okkur að heimsóknir sem þessar eru nauðsynlegar í að viðhalda og efla góð samskipti um allt land. Það er í senn mikilvægt fyrir okkur að kynna okkur helstu málefni sveitarfélaganna en ekki síður þarft fyrir forsvarsmenn þeirra að sjá hvar hugsanlegir samstarfsfletir með Byggðastofnunar gætu legið,” segir Arnar að lokum.

/Byggðastofnun - MBI 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir