Skagfirski kammerkórinn með tónleika í Blönduóskirkju
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
16.12.2024
kl. 15.45
Skagfirski kammerkórinn býður til jólatónleika Blönduóskirkju þriðjudaginn 17.desember einnig klukkan 20:00.
Þekkt og fjölbreytt jólatónlist frá ýmsum löndum, létt, hàtíðleg, gömul og ný verða á dagskránni. Nýr stjórnandi kórsins er Elena Zharinova og undirleikari Rögnvaldur Valbergsson. Helga Rós Indriðadóttir sópran syngur einsöng og Kristín Halla Bergsdóttir leikur á fiðlu ásamt því að stjórna barnakór.
Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en tekið er við frjálsum framlögum í Blönduóskirkju sem rennur í orgelsjóð kirkjunnar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.