Sérstakar aðgerðir til að liðka fyrir ráðningum - Starfsfólk vantar á leikskóla á Blönduósi
Á fundi sveitarstjórnar Húnabyggðar, sem haldinn var 13. september sl. voru samþykktar sérstakar aðgerðir til að liðka fyrir ráðningum starfsfólks við leikskóla Húnabyggðar.
Tillögurnar höfðu verið til meðferðar hjá fræðslunefnd og byggðaráði Húnabyggðar en þær eru nú í fimm liðum og hafa verið kostnaðarmetnar og kynntar fyrir núverandi starfsfólki leikskólans sem rekur tvær starfstöðvar, Barnabæ á Blönduósi og Vallarból á Húnavöllum. Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að gert sé ráð fyrir því að hefja innleiðingu á aðgerðunum frá 1. október.
„Á 5. fundi fræðslunefndar sem haldinn var 28. september s.l. voru samþykkt drög að nýrri starfsauglýsingu sem auglýsir m.a. þær aðgerðir til að liðka fyrir ráðningu starfsfólks og sveitarstjórn hefur samþykkt. Þar ber helst að nefna að starfsfólk leikskóla sveitarfélagsins uppfylli 100% vinnuskyldu með 7 klst., vinnudegi, hlutstörf skalast hlutfallslega niður á sama hátt. Einnig fá fastráðnir starfsmenn leikskólans árskort í sund og þrek í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi án endurgjalds.
Aðrar aðgerðir snúa meðal annars að auknu hópefli meðal starfsmanna, viðbótar undirbúningstíma á deildum og reglubundinni aðkeyptri mannauðsráðgjöf fyrir stjórnendur og starfsfólk,“ segir á blonduos.is en þar er einnig komin inn auglýsing þar sem auglýst er eftir starfsfólki á leikskóa.
Allar frekari upplýsingar veitir Pétur Arason, sveitarstjóri, ásamt stjórnendum leikskóla Húnabyggðar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.