Samsett fiskileður í þróun

María Dís Ólafsdóttir, frumkvöðull. Aðsend mynd.
María Dís Ólafsdóttir, frumkvöðull. Aðsend mynd.

Nýsköpunarfyrirtækið AMC fékk nýverið tveggja ára Sprota styrk frá Rannís upp á samtals 20 milljónir til að þróa fyrsta samsetta fiskileðrið á Íslandi. Fyrirtækið er í eigu ungs frumkvöðlapars á Norðurlandi Maríu Dísar Ólafsdóttur, lífverkfræðings, og Leonard Jóhannssonar, vélfræðings. Áður hafði verkefnið fengið FRÆ styrk Rannís og vann titilinn Norðansprotinn í hugmyndasamkeppni síðastliðið vor.

Í framhaldi af keppninni tók teymið þátt í hraðlinum Vaxtarrými sem lauk fyrir skemmstu og er á vegum SSNE, SSNV, RATA og Eims. Að sögn Maríu Dísar fékk verkefnið nýverið endanlegt nafn og ber heitið Nanna Lín.

„Vinna hófst síðastliðið vor þó hugmyndin sé ári eldri. Nanna Lín er leður gert úr afgangs roði og mun lokaafurðin vera sterkt og gott leður í metravís. Með því að nýta hliðarafurðir til leðurgerðar má t.d. leysa ýmis gervi textílefni af hólmi og draga með því úr mengun og losun vegna þeirra,“ segir hún en varan er t.a.m. ætluð húsgagnaframleiðendum, bólstrurum og öðrum hönnuðum sem vinna með textíl.

„Þetta er mjög stórt og spennandi verkefni sem við eigum fyrir höndum. Með því að bjóða upp á stóra fleti af leðri má ná mun betri nýtni í framleiðslu á vörum, samanborið við leður sútað með hefðbundnum hætti,“ útskýrir María.

Þessa dagana er teymið að koma nýrri heimasíðu í loftið og láta endurteikna lógó og segir María að jólunum verði eytt í rólegheitunum, en svo fari allt á fullt eftir áramót.

„Ég hef alltaf haft óendanlegan áhuga á hliðarafurðum og því púsli sem því fylgir. Fyrir mér er þetta eitthvað sem þarf að gera, og þarf að fullreyna. Við höfum fengið mikinn stuðning og fólk er almennt mjög spennt fyrir verkefninu,“ segir María sem einmitt tók að sér þriggja mánaða verkefni hjá SSNV sumarið 2021. Var það í tengslum við glatvarmann frá gagnaverinu á Blönduósi og nýtingarmöguleika þeirrar hliðarafurðar og segir María það verkefni og það sem hún fæst við núna eiga það sameiginlegt að nýta hliðarafurðir eða kanna möguleika þeirra.

Aðspurð um sérstöðu sútunarinnar segir María hana liggja í því að Nanna Lín verður samsett eða endurmótað í stærri fleti en venja er og þess vegna er talað um metravís. Sú endurmótun fer fram áður en leðrið er sútað. „Að ná leðri í stærri fleti eykur nýtnina þegar verið er að framleiða varning úr því en það er einnig hægt að nýta afskurð til að búa til leðrið. Því er nýtingin á hráefnum aukin bæði í framleiðslu og áframhaldandi vinnslu. Það er mikil nýsköpun í verkefninu og sjáum við fram á að gera mjög mjög margar tilraunir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir