Pétur Jóhann óhæfur á Skagaströnd og Hvammstanga

Skagfirðingurinn grínaktugi, Pétur Jóhann Sigfússon, fer léttan rúnt á Norðurlandi vestra þessa dagana. Kappinn treður upp með uppistand sitt, Pétur Jóhann óhæfur, á Skagaströnd í kvöld og kvöldið eftir mætir hann jafnvel enn hressari á Hvammstanga.

Í kynningu á Facebook-síðu Péturs Jóhanns segir: „Brandarabúntið Pétur Jóhann kemur sterkur inn á árinu 2022 með sprenghlægilega sýningu og glænýtt efni.“ Um er að ræða tveggja tíma uppistandssýningu sem Pétur hefur sett saman og er sjálfstætt framhald sýningarinnar Pétur Jóhann óheflaður. – Spurning hvort sú sýning hefði fallið vel í kramið á Vatnsnesinu...?

Á Skagaströnd er það Dísa á Harbour Restaurant sem sér um forsölu miða en Pétur Jóhann mætir til leiks í Fellsborg og byrjar grínið kl. 21:00. Hann verður síðan á laugardagskvöldinu í Félagsheimilinu á Hvammstanga en þar hefst leikur kl. 20:00. Forsala miða hófst hjá Lindu í Söluskálanum á Hvammstanga sl. miðvikudag.

Aldurstakmark er 18 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir