Nýtt og betra samfélag
Nú styttist í kosningar sem haldnar verða laugardaginn 14. maí næstkomandi. Yfir kjósendur hvolfast stefnuskrár og loforð frambjóðenda um hvernig þeir vilji vinna að því að gera samfélagið okkar enn betra. Mikill samhljómur er í þeim loforðum og allir vilja leggja sitt að mörkum fyrir hið nýja sveitarfélag. En hvað einkennir góð samfélög? Hvernig má byggja upp samfélag sem hlúir að öllum þeim þáttum sem sem íbúar telja mikilvæga?
Hagsæld og velferð íbúa samfélags verður ekki einungis byggð á rekstrarlegum forsendum útsvari eða úthlutunum jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Góð samfélög byggja upp lífsgæði íbúa á sem breiðustum grunni. Þau byggja ofan á það sem vel hefur verið gert og leggur vinnu í að byggja upp og laga það sem bæta má. Vinna að því að gæði samfélagsins skiptist sem jafnast á milli íbúa þess og að allir fái tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins. Flétta þarf saman þarfir allra íbúanna og uppfylla þær lagalegu skyldur sem sveitarfélögum er gert að uppfylla. Þetta er hlutverk hinnar nýju sveitarstjórnar en hún gerir það ekki án íbúanna.
Velferð allra íbúa samfélagsins þarf að vera hornsteinn í uppbyggingu nýs sveitarfélags. Undirbúa þarf jarðveginn vel svo að atvinna, landbúnaður, skólastarf, heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta, nýsköpun, fyrirtækjarekstur, ferðamennska og afþreying hvers konar geti blómstrað.
Byggja þarf upp innviði og þjónustu sem laðar að nýja íbúa og fær unga fólkið okkar til að snúa heim að loknu námi og stækka og auðga samfélagið okkar.
Miklir möguleikar felast í uppbyggingu á Húnavallasvæðinu, þessa möguleika þarf að kortleggja. Finna þarf fjárfesta sem hafa burði og þekkingu til að halda áfram uppbyggingu og tilbúnir að nýta sér þær miklu endurbætur sem gerðar hafa verið á húsnæðinu á síðustu árum. Slík starfsemi felur í sér verulega fjölgun starfa á svæðinu og eykur umsvif ferðaþjónustunnar hér á svæðinu til framtíðar. Hugmyndir um umhverfisakademíu falla vel að slíkri starfsemi.
Í stefnuskrá H-listans er að finna önnur áhersluatriði sem listinn vill vinna að næsta kjörtímabil.
Sameining Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar er nú, eftir margra ára undirbúning, orðin að veruleika. Pólitísku framboðin hafa farið mikinn með móttöku þingmanna, ráðherra og haldið úti kosningaskrifstofum. Keppt hefur verið um að tilkynna loforð stjórnmálaflokkanna um verkefni á svæðinu sem búið væri að koma í höfn af þeirra tilstuðlan. Þarna er um að ræða lagningu á bundnu slitlagi á Blönduósflugvelli sé komin á samgönguáætlun en einnig að ráðherra sé komin með heimild til að ganga til samninga um kaup ríkisins á skrifstofuhúsnæði Blönduósbæjar. Þetta eru að sjálfsögðu góðar fréttir en rétt að árétta að þessi verkefni ásamt þeim fjármunum sem fengist hafa loforð fyrir í Umhverfisakademíu á Húnavöllum eru allt hluti af því sem undirbúningsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna hefur barist fyrir í sinni vinnu allt frá því að fyrri sameiningarvinnan hófst.
H-listinn er ópólitískt framboð og hefur því ekki tekið þátt í heimboðum þingmanna eða ráðherra nú í aðdraganda kosninganna. Engu að síður er H-listinn tilbúinn að vinna að málefnum nýs sveitarfélags með öllum stjórnmálaflokkum á kjörtímabilinu og vonar að þeir verði eins duglegir og nú, að mæta á svæðið eftir kosningar.
Nú ríður á að vanda til verka og byggja upp samfélag sem allir geta verið ánægðir með og að það uppfylli þær kröfur að vera gott samfélag. H-listinn mun gera allt sem í hans valdi stendur til að svo geti orðið. Við óskum því eftir stuðningi ykkar á kjördag setjið X við H.
Jón Gíslason og Berglind Hlín Baldursdóttir
Höfundar skipa 2 efstu sætin á H-lista
í sameinuðu sveitarfélagi Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.