Nýr blaðamaður á Feyki

Sumarafleysing Feykis þetta árið er í höndum Ingólfs Arnar Friðrikssonar og hefur hann störf í dag.

Ingólfur er Skagfirðingur, þó svo að hann sé fæddur á Akureyri og ættaður úr Dalvíkurbyggð. Þó svo að hann hafi stungið af til Reykjavíkur í nokkur ár, þá liggur leiðin alltaf heim í fjörðinn fagra.
Ingólfi finnst að maður eigi alltaf að stíga örlítið út fyrir þægindaramman þegar slík færi bjóðast og taldi hann að þetta væri kjörið tækifæri til þess.

Ingólfur hefur undanfarin ár unnið við þrif í hinum ýmsu fyrirtækjum en fannst vera kominn tími á nýtt ævintýri. Fólk hefur líklega helst séð hann á gangi eftir Skagfirðingabrautinni með hundinn sinn.

Ingólfur mun skrifa fréttir í Feyki og Feykir.is, sinna frétta- og efnisöflun ásamt tilfallandi störfum.
Þeir sem eru með ábendingar eða annað geta sent honum línu á bladamadur@feykir.is eða slegið á þráðinn í síma 822 2291

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir