Myrkurgæði – nýsköpun í ferðaþjónustu :: Vísindi og grautur
Fimmtudagurinn 24. nóvember verður haldinn fyrirlestur á netinu í fyrirlestraröð Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, Vísindi og grautur – þrjú korter af vísindum, þar sem því er velt upp hvort, og þá hvernig ferðaþjónustan geti nýtt sér myrkurgæði til að skapa nýja ferðavöru.
Nýibær á Hólum í Hjaltadal,
kannski dæmi um stað þar
sem hægt er að nýta sér
einfalda innviði (torfbæ)
til að skapa sterkt sjónarhorn
á mynd og þar með eftirminnilega
upplifun. (Kjartan Bollason, 2022)
Kjartan Bollason, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, og Magnea Lára Elínardóttir, BA nemi og starfsmaður í Dark Sky Ecotourism Erasmus+ myrkurgæðaverkefni, segja frá gerð og þróun fræðsluefnis fyrir fyrirtæki og samfélög um hvernig nýta megi myrkrið í ferðavörur sem fyrirtækin eru með í boði og skapa nýjar.
Hestur og dansandi norðurljós í Hörgárdal.
Vinsælt myndefni og því gott að fyrirtæki
pæli í spennandi sjónarhorni fyrir
ljósmyndun. (Berkani, e.d.)
„Myrkurgæðaferðaþjónusta einkennist af gestum sem ferðast til afskekktra, óupplýstra svæða á landi eða vatni, til að fylgjast með fyrirbærum á himnum, eins og stjörnum, reikistjörnum, tungli, geimþokum, stjörnuþyrpingum eða vetrarbrautum. Ferðamenn geta skoðað himininn með berum augum eða með hand- eða stjörnusjónaukum. Upplifun gesta af myrkum himni getur einnig blandast öðrum viðfangsefnum líkt og stjörnuljósmyndun eða að hlusta á sögumann (Dalgleish et al., 2022),“ segir í tilkynngu.
Sagt verður frá dæmum úr íslenskri ferðaþjónustu og fjallað um hvernig fyrirtæki geta skapað nýjar upplifanir en við slíka vöruþróun er fylgt markmiðum um sjálfbæra ferðaþjónustu.
Eins og áður segir fer fyrirlesturinn fram á netinu og hefst klukkan 11.15 og stendur til 12. Hægt er að nálgast hlekk HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.