Lilja lenti Boeing 767 á JFK í flughermi
Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti þjálfunarsetur Icelandair sem staðsett er að Flugvöllum í Hafnarfirði og fundaði með forstjóra og framkvæmdarstjórum félagsins. Prófaði hún meðal annars flughermi í setrinu er hún lenti Boeing 767-300 vél á JFK flugvelli í New York.
Á heimasíðu Stjórnarráðsins kemur fram að tilkoma þjálfunarsetursins hafi markað tímamót fyrir flugiðnaðinn hér á landi en með því færðist stærstur hluti þjálfunar flugmanna Icelandair til landsins.
Í dag fer þjálfun flugmanna félagsins fram í setrinu í flughermum fyrir flugvélar af tegundinni Boeing 757-200, Boeing 737-8 MAX og Boeing 767-300 ER. Þá fer þjálfun flugliða félagsins einnig fram í þjálfunarsetrinu ásamt því að flugmenn erlendra flugfélaga eru sendir til setursins til hljóta þjálfun í flughermunum.
„Þjálfunarsetur Icelandair er tilkomumikið og hefur stórbætt þjálfunarumhverfi flugmanna hér innanlands. Slíkt skiptir flugþjóð og ferðamannaland eins og Ísland miklu máli og eykur alþjóðlega samkeppnishæfni flugiðnaðarins hér á landi. Það eru spennandi og áhugaverðir hlutir að gerast í flugheiminum sem skapa aukin tækifæri fyrir landið til framtíðar,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.