Laura Chahrour til liðs við Tindastól

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við hina spænsku Laura Chahrour um að leika með kvennaliðinu á næsta tímabili. „Laura er akkúrat það sem við vorum að leita að. Hún passar fullkomlega í hlutverkið sem við vorum að leitast eftir að fylla.
 
Hún er alhliða bakvörður með góða getu til að skora í 1 á 1 aðstæðum. Hún hefur reynslu úr efstu deild á Spáni og einnig í Sviss. Ég hlakka mikið til að sjá hana hjá okkur á næsta tímabili.“ Segir Israel Martin þjálfari liðsins. Við bjóðum Laura Chahrour hjartanlega velkomna í Skagafjörðinn og hlökkum til að sjá hana í Síkinu í vetur!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir