Kynningarfundur um hlutdeildarlán fyrir fyrstu kaupendur

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun boðar til kynningarfundar í dag, föstudag, kl. 10, þar sem kynnt verða hlutdeildarlán sem HMS veitir fyrir fyrstu kaupendur. Hægt verður að fylgjast með fundinum á beinu streymi.

Fundurinn fer fram í Borgartúni 21 í Reykjavík en þar verður kynnt hvernig hlutdeildarlánin hafa verið hingað til ásamt nýjustu breytingum sem gerðar hafa verið á þeim.

Dagskrá fundarins:
10:00-10:15 Hlutdeildarlánin fram til þessa
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs HMS

10:15-10:30 Nýjustu breytingar á hlutdeildarlánum
Einar Georgsson, verkefnastjóri hlutdeildarlána

Fundinum verður streymt á hms.is/streymi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir