Katrín M. Guðjónsdóttir nýr framkvæmdastjóri SSNV

Nýr framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er Katrín M. Guðjónsdóttir en hlutverk hennar verður að byggja upp samfélagið á Norðurlandi vestra í samstarfi við sveitafélög og sveitastjóra á svæðinu. Sveitafélögin sem um ræðir eru Húnaþing vestra, Húnabyggð, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd og Skagafjörður.

Á  heimasíðu samtakanna kemur fram að Katrín sé viðskipta- og markaðsfræðingur með MBA gráðu frá Háskóla Íslands og hefur yfirgripsmikla reynslu sem stjórnandi og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu hér á landi og í alþjóðaumhverfinu. Undanfarin ár hefur hún stýrt markaðs- og sölusviði Men&Mice og stýrt þar markaðssókn beggja vegna Atlantshafsins. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Alva, markaðsstjóri olíufélaganna N1 og Skeljungs, og hjá heildversluninni Innnes auk þess að starfa að markaðsmálum fyrir Símann.

„Við erum afar ánægð með að fá Katrínu til liðs við okkar öfluga starfsmannahóp hjá SSNV. Starfsemi samtakanna er sveitarfélögunum á starfssvæðinu mikilvægur samstarfsvettvangur og sterkur hlekkur í þróun og eflingu landshlutans. Reynsla og bakgrunnur Katrínar mun nýtast vel í því verkefni,“ Segir Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður stjórnar SSNV.

Katrín segist taka nýrri áskorun fagnandi og hlakki til að takast á við fjölbreyttar og skemmtilegar áskoranir. „Norðurland vestra á heilmikið inni sem landshluti. Að starfa fyrir samfélag og yfir 7500 íbúa er mikil hvatning“ segir Katrín M. Guðjónsdóttir nýráðin framkvæmdastjóri SSNV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir