Íslenskur landbúnaður í Höllinni um helgina
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 verður haldin í Laugardalshöllinni 14. til 16. október næstkomandi. Sýningin er beint framhald af samnefndri sýningu sem haldin var haustið 2018 en sú sýning var einstaklega vel sótt og engin ástæða til annars en að ætla að svo verði á ný að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra Íslensks landbúnaðar 2022.
„Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu. Sýningin verður jafnframt öflugur kynningarvettvangur þjónustufyrirtækja í landbúnaði og geta bændur og aðrir gestir kynnt sér það nýjasta í tækjum og hvers kyns rekstrarvörum fyrir landbúnaðinn,“ útskýrir Ólafur sem segir mikla grósku í sveitum landsins.
„Við finnum það á viðtölum við bændur að sveitirnar eru að blómstra. Ferðaþjónustan hefur tekið risastökk og svo er öll tækniþróun að létta mjög undir hjá bændum. Þeir eru jafnvel farnir að stýra ýmsu í gripahúsum í gegnum tölvubúnað. Þá eru líka litlir landbúnaðarframleiðendur víða að af landinu með mjög forvitnilega bása. Fjölbreytileiki landbúnaðarvara eykst stöðugt og er einstaklega gaman að geta tekið þátt í því að kynna alla þessa grósku og fjölbreytileika á svona stórri sýningu en hún fyllir 5000 fermetra sal nýju Laugardalshallar.
Þá erum við afar ánægð með þá fyrirlestradagskrá sem hér er boðið upp á. Fyrirlestar í senn fróðlegir og áhugverðar og nýjar hugmyndir reifaðar. Eitt er víst að það hefur sjaldan verið ríkari þörf á öflugum innlendum landbúnaði og nú um stundir þegar ríkja stríð og plágur. Hollur er heimafenginn baggi!“ segir Ólafur að lokum.
Sýningin Íslenskur landbúnaður 2022 er opin á föstudag: 14. október kl. 14.00-19.00, laugardag: 15 október kl. 10.00-18.00 og sunnudag: 16. október kl. 10.00-17.00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.