Hugmyndafundir vegna uppbyggingar í gamla bænum á Blönduósi

Gamli bærinn á Blönduósi. MYND AF BLÖNDUÓS.IS
Gamli bærinn á Blönduósi. MYND AF BLÖNDUÓS.IS

Í byrjun september var undirrituð viljayfirlýsing um uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Að því tilefni verða haldnir tveir opnir hugmyndafundir dagana 22. og 23. nóvember þar sem safnað verður saman hugmyndum fólks um uppbyggingu gamla bæjarhluta Blönduóss. Fyrri fundurinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi kl. 19 en sá síðari fer fram í Reykjavík.

Í frétt á vef Blönduóss er sagt frá því að einkaaðilar hafi á undanförnum árum verið að byggja upp þjónustustarfsemi í gamla bænum og nú hafa sterkir fjárfestar bæst í hópinn og sveitarfélagið ákveðið að fylgja þessari þróun fast eftir og klára deiliskipulag svæðisins.

Áður en það er gert vill sveitarfélagið safna saman hugmyndum þeirra sem áhuga hafa á því að leggja þessari vinnu lið og hafa þannig úr sem flestum hugmyndum að moða þegar deiliskipulagið er mótað í endanlegt form. Á hugmyndafundinum mun sveitarfélagið kynna megin drög þeirrar hugsunar sem það hefur sett í þessari vinnu en eins og flestum er kunnugt um hefur vinnan fram að þessu tekið útgangspunkt í skýrslu sem gerð varð um gamla bæinn og Klifamýri þar sem áhersla var lögð á verndarsvæði í byggð,“ segir í fréttinni.

Á fundinum mun InfoCapital einnig kynna sín áform um uppbyggingu en fyrirtækið hefur þegar keypt hótelið, Aðalgötu 9 (þar sem brauðgerð Krútt var til húsa), tvær hæðir í Helgafelli og Pétursborg.

Fundurinn 22. nóvember verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19:00 en fundurinn 23. nóvember verður haldinn í Mengi, Óðinsgötu 2 Reykjavík, klukkan 19:00. Áhugasamir geta séð húsakönnun svæðisins sem gerð var af Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt og fyrirtæki hennar TKJ árið 2015 hér > 
FSK Greinarger360 2015.dgn 
minjastofnun.is
.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir