Hljómsveitin LÓN heldur tónleika í Krúttinu Blönduósi föstudaginn 4. ágúst
Hljómsveitin LÓN heldur tónleika í Krúttinu Blönduósi föstudaginn 4. ágúst.
Meðlimir LÓNs kalla sig sveitapabba í útlegð í úthverfunum en þessir þjóðþekktu tónlistarmenn, Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson og Ómar Guðjónsson, vildu spreyta sig á lítillátari hljóðheim sem hæfir þeirri skilgreiningu.
Þökk sé heimsfaraldri var fyrsta plata LÓNs að mestu tekin upp í bílskúr í Garðabæ og í bústað við Þingvallavatn en einangrunin frá umheiminum og nándin sem skapaðist milli hljómsveitarmeðlima hafði áhrif á það hvernig platan hljómar.
Tónlistin er undir einhverskonar áhrifum frá þjóðlagatónlist. Hún er frekar lágstemmd þannig að laglínan og textarnir fá að njóta sín. Við vinnslu á plötunni var reynt að halda í einfaldar útsetningar en samt þannig að allur hljóðfæraleikur sé spennandi og með einhver sérkenni. Markmiðið var alltaf að skapa hljóðheim sem væri sérstakur og einkennandi fyrir LÓN.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.