Guðrún Eik í nýrri stjórn Bjargráðasjóðs

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað nýja stjórn Bjargráðasjóðs til fjögurra næstu ára en honum er ætlað að bæta tjón í landbúnaði af völdum náttúruhamfara sem ekki fæst bætt annars staðar. Guðrún Eik Skúladóttir, bóndi á Tannstaðabakka í Húnaþingi vestra er ein þriggja sem skipa stjórnina.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að starfshópur á vegum matvælaráðuneytisins hafi nýverið gert úttekt á tryggingamálum bænda en í hópnum áttu sæti fulltrúar matvæla- og fjármálaráðuneyta, Bændasamtaka Íslands, Bjargráðasjóðs, Náttúruhamfaratryggingar Íslands og samtaka fjármálafyrirtækja fyrir hönd tryggingafélaga. Skýrsla og tillögur hópsins liggja nú fyrir og leggur hópurinn m.a. til að lög um Bjargráðasjóð verði endurskoðuð. Ný stjórn sjóðsins mun vinna úr ákvörðunum matvælaráðherra þegar þær liggja fyrir.

Hina nýju stjórn skipa:
Jóna Björg Hlöðversdóttir, formaður, bóndi, Björgum, Þingeyjarsveit
Jóhannes Sigfússon, bóndi, Gunnarsstöðum, Svalbarðshreppi
Guðrún Eik Skúladóttir, bóndi, Tannstaðabakka, Húnaþingi vestra

Dæmi um verkefni sjóðsins er stuðningur vegna kal- og girðingatjóna eftir veturinn 2019-20, og flóða og skriðufalla líkt og þeirra sem urðu í Út-Kinn í Þingeyjarsýslu í fyrra.

Í frétt matvælaráðuneytisins segir að saga Bjargráðasjóðs spanni rúma öld og hefur sjóðurinn skipað þýðingarmikið hlutverk við að hjálpa bændum að takast á við tjón sem oft eru ekki tryggjanleg. Náttúruhamfaratrygging Íslands annast rekstur og umsýslu sjóðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir