Frestur rennur út á miðnætti þann 15. janúar 2025
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
12.12.2024
kl. 08.37
SSNV kallaði fyrr í þessum mánuði eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra fyrir árið 2024 og er þetta í sjötta sinn sem þessi viðurkenning verður veitt. Veittar eru viðurkenningar í tveimur flokkum; verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og verkefni á sviði menningar. Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum og er tekið við tilnefningum til miðnættis 15. janúar 2025 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti.
Þeir sem hafa fengið viðurkenningar eru eftirfarandi;
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2019 fengu: Sýndarveruleiki ehf. og Kakalaskáli.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2020 fengu: Vörusmiðja Biopol og Handbendi brúðuleikhús.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2021 fengu: Brúnastaðir í Fljótum, Maður og kona ehf. og Sögufélag Skagafjarðar.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2022 fengu: Austan Vatna og Ós Textíllistamiðstöð.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni árið 2023 fengu: Leikflokkur Húnaþings vestra og Kaffibrennslan Korg í Skagafirði
Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér.
Upplýsingar um verkefni sem hlutu styrk úr Uppbyggingarsjóði fyrir árið 2024 má finna hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.