„Ég er aldrei með bækur á náttborðinu“

Kobrún í bókaflóði. MYND: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Kobrún í bókaflóði. MYND: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Nú ræðst Bók-haldið ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og bankar kurteislega á dyrnar hjá blaðamanninumm og bókmenntagagnrýnandanum Kolbrúnu Bergþórsdóttur. Þetta er nú kannski ekki alveg satt. Kolbrún, sem fæddist í Reykjavík árið 1957 og býr þar, fær raunar aðeins sendan tölvupóst með spurningalista Bók-haldsins.

Flestir ættu að kannast við Kolbrúnu úr Kiljuþáttum Egils Helgasonar sem eins af gagnrýnendunum sem ná að smita fólk af áhuga á bóklestri. Hún starfar einnig á Fréttablaðinu og er ekki feimin við að segja sína skoðun á málefnum líðandi stundar – jafnvel þó hún fari á stundum á móti straumnum. Kolbrún var klár í slaginn þegar Feykir bauð henni að svara Bók-haldinu. Hún segist því miður ekki hafa nein tengsl við Norðurland vestra.

Hvaða bækur ertu með á náttborðinu? „Ég er aldrei með bækur á náttborðinu því ég les ekki í rúminu nema ég sé í útlöndum. Ég les hins vegar í sófanum mínum á hverju kvöldi. Ég er nýbúin að lesa sagnfræðibók sem heitir Nazi Wives og fjallar um eiginkonur nasistaleiðtoganna, sérlega áhugaverð bók. Las líka afar góðar en mjög þunglyndislegar smásögur eftir Tove Ditlevsen og er að lesa The Magician eftir írska rithöfundinn Com Toibin, algjörlega heillandi skáldsaga um þýska Nóbelsverðlaunarithöfundinn Thomas Mann og fjölskyldu hans. Mín bíða svo um 40 bækur til að lesa, mestallar á ensku, en flestar keypti ég á uppboði á netinu. Þar á meðal er bók um fræga forngrikki, tvær bækur eftir Nóbelsverðlaunahafann Olgu Tokarczuk og smásögur eftir rússnesku snillingana Tsjekhov og Gogol.“

Hver er uppáhaldsbókin af þeim sem þú hefur lesið gegnum tíðina? „Karamazov bræðurnir eftir Dostojevskí og David Copperfield eftir Charles Dickens eru mínar uppáhaldsbækur. Verð líka að nefna Myndina af Dorian Gray eftir Oscar Wilde og To Kill a Mockingbird eftir Harper Lee. Svo er Biblían bók bókanna, sá sem hefur ekki lesið hana getur ekki talið sig vel lesinn.“

Hvers konar bækur lestu helst? „Ég les mest af skáldverkum en hef einnig gaman af vel skrifaðri og læsilegri sagnfræði. Þegar kemur að skáldsögum er 19. öldin í miklu uppáhaldi og fyrri hluti 20 aldar.“

Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá þér þegar þú varst barn og manstu af hvaða bók þú lærðir að lesa? „Ég lærði að lesa af Litlu gulu hænunni og hef haldið upp á hana æ síðan. Sem barn las ég allt sem ég komst í og man sérstaklega eftir ævintýrum H. C. Andersen, Grimmsævintýrum, Dimmalimm, bókum Astrid Lindgren og Pollýönnu. Ég grét mikið yfir Ævintýri litla tréhestsins, þótt þar hefði allt farið vel á lokum, og á þá bók enn. Ég hélt sérstaklega upp á bókaröðina um Grím grallara og gladdist mjög þegar Einar Kárason sagði mér frá dálæti sínu á þeim bókum. Ég hef síðustu árin keypt þær bækur á ensku, þær eru rúmlega 30 og mig vantar núna sjö í safnið. Ég las Jónas Hallgrímsson mjög ung og varð svo sorgbitin yfir Óhræsinu að ég steinhætti að borða rjúpu og hef ekki borðað hana síðan. Brúðarskórnir og Konan sem kyndir ofninn minn eftir Davíð Stefánsson fengu mig til að tárast. Ég fór síðan að lesa Íslendingasögurnar um tíu ára aldur og mér finnst enn að Hallgerður hafi verið hið mesta flagð, það er engin ástæða til að fyrirgefa henni og fáránlegt að hampa henni. Ég las Myndina af Dorian Gray eftir Oscar Wilde í íslenskri þýðingu og varð algjörlega heilluð og er það enn í dag.“

Hvaða bók er ómissandi eða er einhver ein bók sem hefur sérstakt gildi fyrir þig? „Ef einhver bók er ómissandi þá er það Biblían. Hún er á ótrúlega fögru máli, full af æsilegum sögum og öðrum sem eru beinlínis göfgandi. Hún geymir mikinn boðskap og svo er það einfaldlega þannig að það er ekki hægt að skilja vestræna menningu og listir almennilega nema kunna skil á sögum hennar. Mér þykir vænt um bækurnar mínar og gaman þykir mér að eiga áritaðar bækur eftir þrjá Nóbelsverðlauna hafa: Halldór Laxness, Isaac Bashievis Singer og Jose Saramago. Svo safna ég sérstaklega bókum úr Everyman‘s Library því þar er heimsklassíkin samankomin.“

Hvaða rithöfundar eða skáld fá hjartað til að slá örar? „P. G. Wodehouse er sennilega skemmtilegasti rithöfundur sem uppi hefur verið. Ég hreinlega dýrka Oscar Wilde og elska Charles Dickens. Ég bíð alltaf eftir nýrri bók frá Stephen King. Hann er reyndar mjög mistækur höfundur en þegar hann er góður þá skemmtir hann manni um leið og hann hræðir mann.“

Hvað er bók? „Fyrir mér er bók prentgripur. Það verður að vera hægt að fletta pappírsblaðsíðum, skoða kápuna og setja bókina upp í hillu ef maður er hrifinn af henni. Ég lít hvorki við hljóðbókum né rafbókum, þær eru bara aumar eftirlíkingar af almennilegum bókum.“

Áttu þér uppáhalds bókabúð? „Waterstone á Piccadilly Circus í London er uppáhaldsbókabúðin mín. Hún er á fimm hæðum og það er dásamlegt að gleyma sér þar. Þangað reyni ég að fara minnst einu sinni á ári, en að fara tvisvar eða þrisvar er best. Svo er ég afar hrifin af fornbókaverslunum og æði í þær hvar sem ég finn þær.“

Hversu margar bækur heldurðu að þú eignist árlega og lestu þær allar? „Ég vil einungis eiga bækur sem ég get hugsað mér að lesa oftar en einu sinni. Þess vegna fara ekki allar bækur sem ég fæ sendar eða kaupi upp í hillu hjá mér. Ef mér líkar þær ekki þá læt ég þær frá mér. Auðvitað er dálítið svekkjandi að losa sig við bækur sem maður hefur borgað fyrir, en það verður bara svo að vera. Bókasafnið stækkar á hverju ári, sennilega um 60-80 bækur.“

Ertu fastagestur á einhverju bókasafni? „Þar sem ég fæ svo mikið af bókum og kaupi heilmikið þá þarf ég ekki að nota bókasöfn og fer þangað varla oftar en tvisvar á ári. En fyrst ég hef tækifæri til þá vil ég hrósa bókasafninu í Vestmannaeyjum, mér fannst það alveg sérlega skenmmtilegt og aðlaðandi þegar ég kom þangað, reyndar fyrir ansi mörgum árum.“

Hvaða bók heldurðu að þú hafir lesið oftast eða er einhver bók sem þér finnst þú ættir að lesa árlega? „Á hverju ári les ég nokkrar bækur eftir P.G. Wodehouse af því hann er svo skemmtilegur. Bækur hans um Blandings kastala og Jeeves og Wooster koma mér alltaf í gott skap.“

Hefur þú heimsótt staði sérstaklega vegna þess að þeir tengjast bókum sem þú hefur lesið? „Já, ég hef heimsótt hús Charles Dickens í London, farið með blóm að gröf Oscars Wilde í París og að gröf Dostojevskís í Pétursborg. Fyrir mörgum árum heimsótti ég heimili Bronte systranna og það var mikil upplifun. Ég man hversu lítil herbergin voru í húsinu.“

Hver er eftirminnilegasta bókin sem þú hefur fengið að gjöf? „Fólk gefur mér ekki bækur!“

Hvað er best með bóklestri? „Einvera.“

Ef þú ættir að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um bók, hvaða bók yrði þá fyrir valinu? „Ég held að ég myndi gefa fallega útgáfu af ljóðasafni Jónasar Hallgrímssonar. Hann er skáldið mitt.“

- - - - - 

Bók-haldið með Kolbrúnu birtist fyrst í 18. tölublaði Feykis 2022 sem kom út 11. maí sl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir