Breytingar á póstþjónustu á Skagaströnd

Samspil póstboxa, póstbíla, bréfbera og landpósta mun sjá neytendum á Skagaströnd fyrir póstþjónustu í takt við breyttar áherslur, segir í tilkynningu frá Póstinum. Myndir aðsendar.
Samspil póstboxa, póstbíla, bréfbera og landpósta mun sjá neytendum á Skagaströnd fyrir póstþjónustu í takt við breyttar áherslur, segir í tilkynningu frá Póstinum. Myndir aðsendar.

Pósturinn hyggst gera breytingar á póstþjónustu, m.a. á Skagaströnd þar sem til stendur að loka pósthúsinu um miðjan janúar 2023. Þess í stað á að leggja meiri áherslu á aðrar þjónustulausnir á svæðinu. Í tilkynningu frá Póstinum segir að vilji sé til að upplýsa viðskiptavini sína um þessar fyrirhuguðu breytingar tímanlega en dreifibréf með öllum nánari upplýsingum um breytingarnar verður dreift til íbúa þegar nær dregur.

Þar kemur jafnframt fram að umfangsmiklar breytingar hafi orðið á póstþjónustu á Íslandi á síðustu áratugum en frá árinu 2010 hefur fjöldi bréfasendinga dregist saman um 74%. Á sama tíma hafa pakkasendingar margfaldast og leggur Pósturinn áherslu á að aðlagast hratt og örugglega og kappkosta að þróa þjónustu sína í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda.

Kjartan Flosason.

Kjartan Flosason, forstöðumaður pósthúsa hjá Póstinum, segir lokanir alltaf erfiðar. ,,Ég er sjálfur svo gott sem fæddur og uppalinn á pósthúsi; ólst upp á pósthúsinu á Bíldudal og svo fluttumst við fjölskyldan á efri hæð pósthússins í Búðardal. Ég hóf svo formlega störf hjá Póstinum fyrir tvítugt og hef unnið þar síðan. Þess vegna skil ég vel að svona lokanir séu erfiðar enda snerta þær svo marga,“ segir Kjartan og bætir við: „Á sama tíma gera breyttir tímar kröfu um breytta þjónustu sem við verðum að laga okkur að.“

Dregið hefur mjög úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa á sama tíma og notkun annarra þjónustulausna er að aukast. Viðskiptavinir gera auknar kröfur um sveigjanleika og einfaldar sjálfsafgreiðslulausnir. Pósturinn hefur sett á laggirnar nýjungar á borð við póstbox og Pakkaport til að koma til móts við viðskiptavini:

„Póstboxin okkar hafa verið afar vinsæl, enda er þar bæði hægt að sækja og senda, hvenær sem viðskiptavinum hentar. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru einmitt þeir sem nota póstbox,“ segir Kjartan og bætir við að um þessar mundir sé verið að leita að staðsetningu til að koma glænýju póstboxi fyrir á Skagaströnd.

Samspil póstboxa, póstbíla, bréfbera og landpósta mun sjá neytendum á svæðinu fyrir póstþjónustu í takt við breyttar áherslur. „Pósturinn er ekki að fara neitt, enda ætlum við okkur að sjálfsögðu að halda áfram að veita góða þjónustu. Póstkassarnir verða áfram á sínum stað og hægt verður að nálgast frímerki hjá endursöluaðilum. Auk póstboxsins, þar sem hægt er að sækja og senda pakka, munu bréfberarnir svo halda áfram að sjá um dreifingu bréfa. Bílstjórarnir okkar munu áfram sinna heimkeyrslu auk þess að afhenda og sækja pakka sem ekki komast í póstbox. Þeir sjá þá um að keyra heim til viðskiptavina, án endurgjalds en póstbílarnir verða eins konar pósthús á hjólum. Viðskiptavinir geta einfaldlega slegið á þráðinn og bílstjórinn sér um rest,“ segir Kjartan að lokum.

Með einföldum hætti geta viðskiptavinir skráð sig á Mínar síður á vef Póstsins eða sótt appið. Þar er hægt að stjórna sendingarmöguleikum og skrá kreditkort til að senda pakka í póstbox ásamt því að nýta ýmsar aðrar lausnir sem stytta bið, lækka gjöld og bæta þjónustu við viðskiptavini enn frekar.

Íbúum á svæðinu verða send dreifibréf með frekari upplýsingum um breytingarnar þegar nær dregur. Á posturinn.is má finna ítarefni og upplýsingar um fjölbreyttar þjónustulausnir Póstsins. Auk þess er alltaf velkomið að hafa samband við þjónustuver í síma 580 1000 eða á netspjallinu við köttinn Njál á posturinn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir