Bleikt boð til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar

Bleika boðið verður haldið í Löngumýri, fimmtudaginn 26. október og opnar húsið kl. 19:30. Boðið verður upp á súpu og brauð og að sjálfsögðu verða skemmtiatriði úr héraði. Aðgangseyrir er 5000 kr. (posi ekki á staðnum) og væri gaman að sjá sem flesta í bleikum klæðum. Þá er óskað eftir því að þeir sem hafa áhuga á að mæta á viðburðinn skrái sig á Facebook-síðu Krabbameinsfélags Skagafjarðar sem hægt er að nálgast á þessum link. Svo má ekki gleyma að haka í MÆTI svo hægt sé að áætla fjöldann í matinn-sjá mynd fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir