Áttatíu stunda nám í fiskeldi við Háskólann á Hólum

Bjarni Kristófer Kristjánsson prófessor
við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild í viðtali við Kristján Má Unnarsson.
Sigurjón Ólason myndatökumaður er á bak við myndavélina. Mynd: holar.is.
Bjarni Kristófer Kristjánsson prófessor við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild í viðtali við Kristján Má Unnarsson. Sigurjón Ólason myndatökumaður er á bak við myndavélina. Mynd: holar.is.

Fjallað var um þá miklu aukningu sem orðið hefur í nemendafjölda í fiskeldi við Háskólann á Hólum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku en þar stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Háskólinn á Hólum í forystuhlutverki, segir í frétt á heimasíðu skólans.

Fiskeldi á Hólum á sér langa sögu, segir í frétt á heimasíðu Hólaskóla, en það var árið 1979 sem hlutafélagið Hólalax var stofnað og hófst starfsemin ári síðar. „Stofnun Hólalax var einn liður í endurreisn Hólaskóla sem seinna varð Háskólinn á Hólum. Árið 1989 hófst markviss uppbygging rannsókna og þróunarstarfs í fiskeldi og fiskalíffræði hjá skólanum. Þá fékkst fjármagn og heimild frá ríkinu til að Hólaskóli tæki að sér kynbætur á bleikju. Árið 1991 gaf þáverandi landbúnaðarráðherra, Halldór Blöndal, út yfirlýsingu um að Hólaskóli skyldi verða miðstöð silungarannsókna og bleikjukynbóta á Íslandi. Þessi ákvörðun skapaði Hólum og Hólaskóla sérstöðu á sviði fiskeldis og hefur reynst skólanum afar mikilvægur í þeirri vegferð að verða háskóli og miðstöð fiskeldisrannsókna á Íslandi. Í dag er Háskólinn á Hólum eini skólinn á Íslandi sem kennir fiskeldi á háskólastigi.“

Fjöldi nemenda hefur aukist mikið hjá Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans samfara miklum vexti í fiskeldi á Íslandi og segir í frétt skólans að það sé mikilvægt að byggja undir þann mikla vöxt í fiskeldi með eflingu náms og rannsókna á háskólastiginu en þar er Háskólinn á Hólum í forystuhlutverki, segir í fréttinni.

„Nýverið afhenti Fisk Seafood háskólanum húsnæði Hólalax í Hjaltadal undir starfsemi Fiskeldis- og fiskalíffræðideildar en áætlað er að nýtt kennslu- og rannsóknahúsnæði muni rísa á Sauðárkróki á næstu tveimur árum þar sem aðgangur verður bæði að fersku vatni og sjó.

Húsnæðið á Sauðárkróki mun ekki einungis gera ráð fyrir kennslu- og rannsóknum í fiskeldi á hæsta gæðastigi heldur einnig námi og rannsóknum í þörungarækt og öðru lagareldi. Framtíð Háskólans á Hólum er því björt og tækifærin endalaus.“

Umfjöllun Stöðvar 2 er hægt að sjá á Vísir.is HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir