Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér Morgunverðarfundur Vegagerðarinnar um öryggi starfsfólks við vegavinnu.
Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um öryggi starfsfólks við vegavinnu þriðjudaginn 7. júní 2022 klukkan 9.00 í húsakynnum Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Flutt verða nokkur áhugaverð erindi en fundinum lýkur með kynningu og undirritun samkomulags um vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér.
Vegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð getur verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því eru vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði tekinn niður með umferðarskiltum. Því miður hefur það ekki alltaf borið árangur og hraði í gegnum vinnusvæði er oft mikill sem eykur mjög hættu fyrir starfsfólk.
Vegagerðin, í samstarfi við Samgöngustofu, verktaka og fleiri aðila, efnir til vitundaátaksins: Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér. Hönnuð hafa verið áberandi og skemmtileg skilti sem afhjúpuð verða á morgunverðarfundinum, en þau verða notuð við framkvæmdasvæði á vegum landsins í sumar meðan átakið stendur yfir.
Dagskrá:
- Þar skall hurð nærri hælum! – Grétar Einarsson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Selfossi.
- Hvernig á að merkja vinnusvæði? – Víkingur Guðmundsson sérfræðingur hjá Vegagerðinni.
- Öryggi við vegavinnu, reynsla Colas á Íslandi – Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland hf.
- Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér. – Pálmi Þór Sævarsson svæðisstjóri Vestursvæðis Vegagerðarinnar og Linda Björk Árnadóttir öryggisstjóri Vegagerðarinnar.
Gestir eru velkomnir á fundinn en eru beðnir að skrá sig hér: https://forms.office.com/r/B8r6fJUmVk
Fundinum verður streymt beint á þessari slóð:
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.