V-Húnavatnssýsla

Hvammstangi kominn með háhraða 5G net!

Nova hefur sett upp 5G sendi á Hvammstanga og býður því bæjarbúum upp á áður óþekktan nethraða á svæðinu. Þar með bætist Hvammstangi í hóp þeirra 45 bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G, en Nova hefur undanfarin ár komið upp yfir 90 sendum í öllum landshlutum. Óhætt er að fullyrða að Nova hafi verið leiðandi í innleiðingu nýjustu tækni og er komið lengst í uppbyggingu 5G á Íslandi. Áætlanir gera ráð fyrir að árið 2024 verði sendarnir orðnir 200 og fjöldi bæjarfélaga með aðgengi að hraðasta neti í heimi orðin yfir 60.
Meira

Þýðing nagladekkjagjalds?

Síðustu daga hefur umræða um svokallað „nagladekkjagjald“ litið dagsins ljós eftir að Umhverfisstofnun viðraði hugmyndir um slíkt gjald. Sú hugmynd gengur út á það að sveitarfélögum verði veitt heimild til að rukka ökumenn um gjald þegar þeir keyra á vegum þess á nagladekkjum. Að mati stofnunarinnar er hægt að draga úr svifryksmengun með slíkri aðgerð. Vissulega er svifryksmengun skaðvaldur á lýðheilsu fólks, og okkur ber að tryggja viðunandi umhverfisgæði. Hins vegar staldra margir, af góðri ástæðu, við þessa hugmynd.
Meira

Öllu er afmörkuð stund :: Leiðari Feykis

Það er fjör í pólitíkinni þessa dagana, ný forysta tekin við í Samfylkingunni, eftir vel heppnaðan landsfund um helgina, og það stefnir í harðan formannsslag hjá Sjálfstæðisfólki um næstu helgi en þá fer fram landsfundur flokksins.
Meira

Háskólinn á Hólum varðveitir Sleipnisbikarinn, merkasta verðlaunagrip íslenskrar hestamennsku

Háskólanum á Hólum hefur verið falið að varðveita á milli Landsmóta hestamanna en samkomulag þess efnis var undirritað sl. föstudag í húsakynnum Söguseturs íslenska hestsins á Hólum. Það var Gunnar Þorgeirsson, formaður BÍ, sem fól rektor skólans, Hólmfríði Sveinsdóttur, að varðveita gripinn, sem sagðist þakka traustið og virðinguna sem skólanum væri sýndur.
Meira

Bauð sig fram til formanns til að leiða breytingar í Samfylkingunni

Á landsfundi Samfylkingarinnar, sem haldinn var um helgina á Grand Hotel í Reykjavík, var Kristrún Frostadóttir kjörin formaður Samfylkingarinnar en enginn bauð sig fram á móti henni. Hlaut hún 94,59 % greiddra atkvæða en á kjörskrá voru 382 og kjörsókn 77,49%. Lýsti hún yfir í ræðu sinni að meginverkefni Samfylkingarinnar næsta árið yrði m.a. að opna flokkinn með því að halda áfram að eiga umfangsmikið samtal við fólk um land allt.
Meira

Syndum – landsátaks í sundi hefst í dag

Í dag, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 10:00, verður landsátakið Syndum sett með formlegum hætti í Laugardalslauginni. Að átakinu stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem er heilsu- og hvatningarátak í sundi og stendur frá 1.- 30. nóvember.
Meira

Ásgeir sendir frá sér Time on My Hands

Stórkanónur íslenskrar tónlistar eru skriðnar undan covid-teppinu og búnar að kasta efnilegum afurðum út í netheima. Björk er mætt til leiks með Fossora, Of Monsters and Men með Tíu og svo er frægasti fulltrúi Laugarbakka í Vestur-Húnavatnssýslu, hann Ásgeir Trausti, mættur með sína fjórðu breiðskífu, Time on My Hands.
Meira

Vöðvasullur í sauðfé – Eigendur hvattir til að láta hreinsa hunda sína

Eins og oft áður hafa eftirlitsdýralæknar Matvælastofnunar orðið varir við vöðvasull í sauðfé frá nokkrum bæjum á yfirstandandi sláturtíð og segir Sigríður Björnsdóttir, héraðsdýralæknir NV- umdæmis að vöðvasullur hafi aðeins verið að sýna sig umdæminu.
Meira

Textílmiðstöðin með fjölþjóðlega vinnustofu á Blönduósi

Nú í síðustu viku október tók starfsfólk Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi á móti samstarfsaðilum sínum í evrópska rannsóknarverkefninu Centrinno. Heimsóknin var hluti af haustfundi verkefnisins og til Blönduóss komu samstarfsaðilar frá Barcelona og Genf en fundað var á sama tíma í París og Mílanó. Jafnframt sóttu fundinn fulltrúar frá París og Amsterdam og samstarfsaðilar í Háskóla Íslands.
Meira

Mögulegt að flýta framkvæmdum við Vatnsnesveg, segir Unnur Valborg, sveitarstjóri

Feykir hafði samband við Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitastjóra Húnaþings vestra og spurði hvernig henni litist á þá nálgun Haraldar Benediktssonar, alþingismanns, sem hann sagði frá á Hvammstanga í upphafi mánaðar. Þar kynnti Haraldur tillögu um flýtingu framkvæmda vegagerðar um Vatnsnes. Hefur þessi hugmynd vakið mikla athygli en hann sagði hana hvorki frumlega né óumdeilanlega en ætlunin væri að flytja sérstakt þingmannafrumvarp til að hún fái framgang í stjórnkerfinu.
Meira