Fuglaskoðunarhúsið á Spákonufellshöfða tilbúið til notkunar
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.12.2023
kl. 11.36
Rétt í þessu kom tilkynning um að glæsilega fuglaskoðunarhúsið á Spákonufellshöfða væri tilbúið til notkunar en Feykis sagði frá því í lok október að uppsetning á nýju fuglaskoðunarhúsi á Spákonufellshöfða væri í fullum gangi. Það er því um að gera að gera sér ferð og skoða þetta fallega hús sem Auður Hreiðarsdóttir hjá ESJA Architecture hannaði en það var reist af Verk Lausnum á Skagaströnd með stuðningi úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða.
Meira