Vill að tjónþolar fái afurðatjón í kjölfar sumarhretsins bætt

Veður var víða hið versta í byrjun júní. MYND: EVELYN
Veður var víða hið versta í byrjun júní. MYND: EVELYN

Dagana 3. til 8. júní gekk yfir Norðurland slæmt veður með mikilli úrkomu og kulda. Veðrið hafði mikil og neikvæð áhrif á búfénað, jarðrækt bænda og á aðra þá sem eiga sitt undir því komið að tíðarfarið sé betra en var þessa daga. Matvælaráðuneytið skipaði viðbragðshóp meðan á veðrinu stóð og skorar Landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar á viðbragðshópinn að ná fram heildstæðu mati á því tjóni sem bændur í öllum greinum urðu fyrir og að í framhaldinu fái tjónþolar afurðatjón sitt bætt.

Í áskorun nendarinnar segir að á eðan veðrið gekk yfir voru þjónustufulltrúi landbúnaðarmála og fleiri starfsmenn sveitarfélagsins í stöðugu sambandi við bændur og aðra um ástandið. „Þær upplýsingar og aðrar sem bárust voru skráðar niður og er ljóst að tjón manna er umtalsvert vegna skepnumissis, hugsanlegra áhrifa veðurs á uppskeru og tjóns sem erfitt er að meta að svo stöddu vegna þeirra aðstæðna sem sköpuðust í yfirfullum gripahúsum. Þrátt fyrir verulega slæmt ástand um tíma barst þó ekki útkall um aðstoð í gegnum 112 en það er sú leið sem auglýst var umrædda daga og ætlast er til að allir fari sem leita þurfa eftir opinberri aðstoð í neyð.

Á meðan á veðrinu stóð (fimmtudaginn 6. júní), skipaði Matvælaráðuneytið sérstakan viðbragðshóp með fulltrúm matvælaráðuneytis, innviðaráðuneytis, Bændasamtaka Íslands, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Almannavarna ríkisins og fulltrúum lögregluembættanna á Norðurlandi vestra og eystra. Hópurinn setti meðal annars af stað úthringingar til bænda á þeim svæðum þar sem talið var að ástandið væri verst. Vinna viðbragðshópsins er ennþá í gangi og beðið er niðurstöðu en ljóst er samt að endanlegt heildarafurðatjón bænda mun ekki liggja fyrir fyrr en í haust þegar endanlegar afurðir og uppskera hafa verið metin og mæld. Samkvæmt okkar mati urðu þeir bændur sem bjuggu hæst m.v. hæð yfir sjó verst úti vegna veðursins en á þeim svæðum urðu snjó þyngsl mun meiri en nokkrum tugum metra neðar í landinu. “

Landbúnaðar- og innviðanefnd vill benda bændum á að kynna sér upplýsingar á heimasíðu Bændasamtaka Íslands >

Byggðarráð Húnaþing vestra bókar

Á vef Húnaþings vestra er sagt frá því að byggðarráð hafi þar bókað á svipuðum nótum.„ Í Húnaþingi vestra, þar sem landbúnaður og ekki hvað síst sauðfjárrækt er stór atvinnuvegur, er fyrirsjáanlegt að veður sem þetta getur haft töluverð áhrif. Jafnframt er ljóst að afleiðingar veðursins hafa ekki komið fram að fullu til dæmis hvað varðar heilsufar áa og fallþunga lamba og munu ekki koma fram að fullu fyrr en í haust.

Þegar aðstæður sem þessar koma upp er mikilvægt að öryggisnet sé til staðar sem tryggir að bændur hafi aðgang að nauðsynlegum björgum í kjölfar tjóns. Byggðarráð skorar á stjórnvöld að vinna að gerð viðbragðsáætlunar vegna áfalla í landbúnaði ásamt því að tryggja bændum fjármagn til að bæta tjón sem af þeim hlýst.“

Fram kemur að bókuninni verði komið á framfæri við matvælaráðherra og þingmenn Norðvesturkjördæmis.

- - - - - - 
Fréttin var uppfærð kl. 15:45.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir